{"id":1645,"date":"2017-11-18T20:18:04","date_gmt":"2017-11-18T20:18:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/fyrri-konungabok-8-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:57:02","modified_gmt":"2021-06-06T10:57:02","slug":"fyrri-konungabok-8-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/fyrri-konungabok-8-kafli\/","title":{"rendered":"Fyrri konungab\u00f3k 8. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00de\u00e1 safna\u00f0i Sal\u00f3mon saman \u00f6ldungum \u00cdsraels og \u00f6llum foringjum kyn\u00fe\u00e1ttanna, \u00e6tth\u00f6f\u00f0ingjum \u00cdsraelsmanna, til s\u00edn \u00ed Jer\u00fasalem til \u00feess a\u00f0 flytja s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins upp eftir fr\u00e1 Dav\u00ed\u00f0sborg, \u00fea\u00f0 er S\u00edon.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6fnu\u00f0ust allir \u00cdsraelsmenn til Sal\u00f3mons konungs \u00ed etan\u00edm-m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni  er s\u00e1 m\u00e1nu\u00f0ur hinn sj\u00f6undi .<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e1 komu allir \u00f6ldungar \u00cdsraels, og prestarnir t\u00f3ku \u00f6rkina.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og \u00feeir fluttu \u00f6rk Drottins og samfundatjaldi\u00f0 og \u00f6ll hin helgu \u00e1h\u00f6ld, er \u00ed tjaldinu voru. Fluttu prestarnir og lev\u00edtarnir \u00feau upp eftir.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>En Sal\u00f3mon konungur og allur \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0ur, er safnast haf\u00f0i til hans, st\u00f3\u00f0 \u00e1samt honum frammi fyrir \u00f6rkinni. F\u00f3rnu\u00f0u \u00feeir sau\u00f0um og nautum, er eigi var\u00f0 t\u00f6lu n\u00e9 \u00e6tlan \u00e1 komi\u00f0 fyrir fj\u00f6lda sakir.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Og prestarnir fluttu s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins \u00e1 sinn sta\u00f0, \u00ed innh\u00fas musterisins, inn \u00ed Hi\u00f0 allrahelgasta, inn undir v\u00e6ngi ker\u00fabanna.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Ker\u00fabarnir breiddu \u00fat v\u00e6ngina \u00fear yfir, er \u00f6rkin st\u00f3\u00f0, og \u00feannig huldu \u00feeir \u00f6rkina og stengur hennar ofan fr\u00e1.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Stengurnar voru svo langar, a\u00f0 stangarendarnir s\u00e1ust fr\u00e1 helgid\u00f3minum fyrir framan innh\u00fasi\u00f0, en utan a\u00f0 s\u00e1ust \u00feeir ekki. Og \u00fe\u00e6r hafa veri\u00f0 \u00fear fram \u00e1 \u00feennan dag.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>\u00cd \u00f6rkinni var ekkert nema steint\u00f6flurnar tv\u00e6r, er M\u00f3se haf\u00f0i lagt \u00fear vi\u00f0 H\u00f3reb, t\u00f6flur s\u00e1ttm\u00e1lans, er Drottinn gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 \u00cdsraelsmenn, \u00fe\u00e1 er \u00feeir f\u00f3ru af Egyptalandi.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>En er prestarnir gengu \u00fat \u00far helgid\u00f3minum, fyllti sk\u00fd h\u00fas Drottins,<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>og m\u00e1ttu prestarnir eigi inn ganga fyrir sk\u00fdinu til \u00feess a\u00f0 gegna \u00fej\u00f3nustu, \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00fdr\u00f0 Drottins fyllti h\u00fas Drottins.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti Sal\u00f3mon: S\u00f3lina setti hann \u00e1 himininn, en Drottinn hefir sj\u00e1lfur sagt, a\u00f0 hann vilji b\u00faa \u00ed dimmu.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>N\u00fa hefi \u00e9g byggt \u00fe\u00e9r h\u00fas til b\u00fasta\u00f0ar, a\u00f0setursta\u00f0 handa \u00fe\u00e9r um eil\u00edf\u00f0.Svo er rita\u00f0 \u00ed lj\u00f3\u00f0ab\u00f3kinni.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sneri konungur s\u00e9r vi\u00f0 og blessa\u00f0i allan \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0, en allur \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0ur st\u00f3\u00f0.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og hann m\u00e6lti: Lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, er tala\u00f0i me\u00f0 munni s\u00ednum vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn og efndi me\u00f0 hendi sinni \u00fea\u00f0, er hann lofa\u00f0i, \u00fe\u00e1 er hann sag\u00f0i:<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Fr\u00e1 \u00fev\u00ed er \u00e9g leiddi l\u00fd\u00f0 minn \u00cdsrael \u00fat af Egyptalandi, hefi \u00e9g ekki \u00fatvali\u00f0 neina borg af \u00f6llum \u00e6ttkv\u00edslum \u00cdsraels til \u00feess a\u00f0 byggja \u00fear h\u00fas, \u00fear sem nafn mitt skyldi b\u00faa. En n\u00fa hefi \u00e9g \u00fatvali\u00f0 Jer\u00fasalem, til \u00feess a\u00f0 nafn mitt b\u00fai \u00fear, og \u00e9g \u00fatvaldi Dav\u00ed\u00f0, til \u00feess a\u00f0 hann skyldi r\u00edkja yfir l\u00fd\u00f0 m\u00ednum \u00cdsrael.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Dav\u00ed\u00f0 fa\u00f0ir minn haf\u00f0i \u00ed hyggju a\u00f0 reisa h\u00fas nafni Drottins, \u00cdsraels Gu\u00f0s,<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>en Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 Dav\u00ed\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn: Vel gj\u00f6r\u00f0ir \u00fe\u00fa, er \u00fe\u00fa \u00e1settir \u00fe\u00e9r a\u00f0 reisa h\u00fas nafni m\u00ednu.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>En eigi skalt \u00fe\u00fa reisa h\u00fasi\u00f0, heldur skal sonur \u00feinn, s\u00e1 er \u00fat gengur af lendum \u00fe\u00ednum, reisa h\u00fas nafni m\u00ednu.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og Drottinn hefir efnt or\u00f0 s\u00edn, \u00feau er hann tala\u00f0i, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e9g kom \u00ed sta\u00f0 Dav\u00ed\u00f0s f\u00f6\u00f0ur m\u00edns og settist \u00ed h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels, svo sem Drottinn haf\u00f0i heiti\u00f0, og hefi n\u00fa reist h\u00fas nafni Drottins, \u00cdsraels Gu\u00f0s.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Og \u00fear bj\u00f3 \u00e9g \u00f6rkinni sta\u00f0, sem \u00ed er s\u00e1ttm\u00e1l Drottins, \u00fea\u00f0 er hann gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 fe\u00f0ur vora, \u00fe\u00e1 er hann leiddi \u00fe\u00e1 \u00fat af Egyptalandi.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Og Sal\u00f3mon gekk fyrir altari Drottins \u00ed vi\u00f0urvist alls \u00cdsraelssafna\u00f0ar, f\u00f3rna\u00f0i h\u00f6ndum til himins<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>og m\u00e6lti: Drottinn, Gu\u00f0 \u00cdsraels, enginn gu\u00f0 er sem \u00fe\u00fa \u00e1 himnum uppi e\u00f0a \u00e1 j\u00f6r\u00f0u ni\u00f0ri, \u00fe\u00fa sem heldur s\u00e1ttm\u00e1lann og miskunnsemina vi\u00f0 \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna, \u00fe\u00e1 er ganga fyrir augliti \u00fe\u00ednu af \u00f6llu hjarta s\u00ednu,<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00fe\u00fa sem hefir haldi\u00f0 \u00fea\u00f0 vi\u00f0 \u00fej\u00f3n \u00feinn, Dav\u00ed\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn, er \u00fe\u00fa h\u00e9st honum. \u00de\u00fa tala\u00f0ir \u00fea\u00f0 me\u00f0 munni \u00fe\u00ednum og efndir \u00fea\u00f0 me\u00f0 hendi \u00feinni, eins og n\u00fa er fram komi\u00f0.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Efn n\u00fa, Drottinn, \u00cdsraels Gu\u00f0, vi\u00f0 \u00fej\u00f3n \u00feinn Dav\u00ed\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn, \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00fa h\u00e9st honum, \u00fe\u00e1 er \u00fe\u00fa sag\u00f0ir: Eigi skal \u00feig vanta eftirmann frammi fyrir m\u00e9r, er sitji \u00ed h\u00e1s\u00e6ti \u00cdsraels, ef synir \u00fe\u00ednir a\u00f0eins var\u00f0veita vegu m\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 ganga fyrir augliti m\u00ednu, eins og \u00fe\u00fa hefir gengi\u00f0 fyrir augliti m\u00ednu.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>L\u00e1t n\u00fa, \u00cdsraels Gu\u00f0, r\u00e6tast or\u00f0 \u00fe\u00edn, \u00feau er \u00fe\u00fa tala\u00f0ir vi\u00f0 \u00fej\u00f3n \u00feinn, Dav\u00ed\u00f0 f\u00f6\u00f0ur minn.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>En mun Gu\u00f0 \u00ed sannleika b\u00faa \u00e1 j\u00f6r\u00f0u? Sj\u00e1, himinninn og himnanna himnar taka \u00feig ekki, hve miklu s\u00ed\u00f0ur \u00fe\u00e1 \u00feetta h\u00fas, sem \u00e9g hefi reist.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>En sn\u00fa \u00fe\u00e9r, Drottinn Gu\u00f0 minn, a\u00f0 b\u00e6n \u00fej\u00f3ns \u00fe\u00edns og gr\u00e1tbei\u00f0ni hans, a\u00f0 \u00fe\u00fa heyrir \u00e1kall \u00fea\u00f0 og b\u00e6n, er \u00fej\u00f3nn \u00feinn ber fram fyrir \u00feig \u00ed dag:<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>a\u00f0 augu \u00fe\u00edn s\u00e9u opin yfir \u00feessu h\u00fasi dag og n\u00f3tt, yfir \u00feeim sta\u00f0, er \u00fe\u00fa hefir um sagt: \u00dear skal nafn mitt b\u00faa a\u00f0 \u00fe\u00fa heyrir b\u00e6n \u00fe\u00e1, er \u00fej\u00f3nn \u00feinn bi\u00f0ur \u00e1 \u00feessum sta\u00f0.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Og heyr \u00fe\u00fa gr\u00e1tbei\u00f0ni \u00fej\u00f3ns \u00fe\u00edns og l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns \u00cdsraels, er \u00feeir fram bera \u00e1 \u00feessum sta\u00f0, j\u00e1 heyr \u00fe\u00fa hana \u00fear er \u00fe\u00fa b\u00fdr \u00e1 himnum, og fyrirgef, er \u00fe\u00fa heyrir.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Ef einhver gj\u00f6rir \u00e1 hluta n\u00e1unga s\u00edns, og hann ver\u00f0ur ei\u00f0s krafinn og l\u00e1tinn sverja, og hann kemur og vinnur ei\u00f0inn fyrir altari \u00fe\u00ednu \u00ed h\u00fasi \u00feessu, \u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 \u00e1 himnum.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>L\u00e1t til \u00fe\u00edn taka og d\u00e6m \u00fej\u00f3na \u00fe\u00edna me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 sakfella hinn seka og l\u00e1ta honum gj\u00f6r\u00f0ir hans \u00ed koll koma, en s\u00fdkna hinn saklausa og umbuna honum eftir r\u00e9ttl\u00e6ti hans.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Ef l\u00fd\u00f0ur \u00feinn \u00cdsrael b\u00ed\u00f0ur \u00f3sigur fyrir \u00f3vinum s\u00ednum, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hafa syndga\u00f0 \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, og \u00feeir sn\u00faa s\u00e9r til \u00fe\u00edn og j\u00e1ta \u00feitt nafn og bi\u00f0ja og gr\u00e1tb\u00e6na \u00feig \u00ed \u00feessu h\u00fasi,<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 \u00e1 himnum og fyrirgef synd l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns \u00cdsraels og lei\u00f0 \u00fe\u00e1 aftur heim til \u00feess lands, sem \u00fe\u00fa gafst fe\u00f0rum \u00feeirra.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Ef himinninn er byrg\u00f0ur, svo a\u00f0 eigi n\u00e6r a\u00f0 rigna, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hafa syndga\u00f0 \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, og \u00feeir bi\u00f0ja \u00e1 \u00feessum sta\u00f0 og j\u00e1ta nafn \u00feitt og sn\u00faa s\u00e9r fr\u00e1 syndum s\u00ednum, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa au\u00f0m\u00fdkir \u00fe\u00e1,<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 \u00e1 himnum og fyrirgef synd \u00fej\u00f3na \u00feinna og l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns \u00cdsraels, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa kennir \u00feeim \u00feann g\u00f3\u00f0a veg, sem \u00feeir eiga a\u00f0 ganga, og gef regn yfir land \u00feitt, \u00fea\u00f0 er \u00fe\u00fa hefir gefi\u00f0 \u00fe\u00ednum l\u00fd\u00f0 til eignar.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Ef hall\u00e6ri ver\u00f0ur \u00ed landinu, ef dreps\u00f3tt kemur, e\u00f0a korndrep e\u00f0a gulnan, engisprettur e\u00f0a jar\u00f0vargar, ef \u00f3vinir hans \u00ferengja a\u00f0 honum \u00ed einhverri af borgum hans, e\u00f0a pl\u00e1gu e\u00f0a s\u00f3tt ber a\u00f0 h\u00f6ndum, \u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa,<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>ef einhver ma\u00f0ur af l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00cdsrael ber fram b\u00e6n e\u00f0a gr\u00e1tbei\u00f0ni, af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann kennir angurs \u00ed hjarta s\u00ednu, og f\u00f3rnar h\u00f6ndum til \u00feessa h\u00fass<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 \u00e1 himnum, a\u00f0setursta\u00f0 \u00fe\u00ednum, og fyrirgef og l\u00e1t til \u00fe\u00edn taka og gef s\u00e9rhverjum eins og hann hefir til unni\u00f0 og svo sem \u00fe\u00fa \u00feekkir hjarta hans \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa einn \u00feekkir hj\u00f6rtu allra manna<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 \u00feeir \u00f3ttist \u00feig alla \u00fe\u00e1 stund, er \u00feeir lifa \u00ed landinu, er \u00fe\u00fa gafst fe\u00f0rum vorum.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>Ef \u00fatlendingur, sem eigi er af l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00cdsrael, en kemur \u00far fjarl\u00e6gu landi vegna nafns \u00fe\u00edns<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>\u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir munu heyra geti\u00f0 um \u00feitt mikla nafn, \u00fe\u00edna sterku h\u00f6nd og \u00fatr\u00e9ttan armlegg \u00feinn ef hann kemur hinga\u00f0 og bi\u00f0ur frammi fyrir \u00feessu h\u00fasi,<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00fea\u00f0 \u00e1 himnum, a\u00f0setursta\u00f0 \u00fe\u00ednum, og gj\u00f6r allt \u00fea\u00f0, sem \u00fatlendingurinn bi\u00f0ur \u00feig um, til \u00feess a\u00f0 \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um jar\u00f0arinnar ver\u00f0i kunnugt nafn \u00feitt og \u00fe\u00e6r \u00f3ttist \u00feig, eins og l\u00fd\u00f0ur \u00feinn \u00cdsrael, og til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e6r megi vita, a\u00f0 h\u00fas \u00feetta, sem \u00e9g hefi byggt, er kennt vi\u00f0 \u00feig.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Ef l\u00fd\u00f0ur \u00feinn fer \u00ed \u00f3fri\u00f0 \u00ed m\u00f3ti \u00f3vinum s\u00ednum, \u00feanga\u00f0 sem \u00fe\u00fa sendir \u00fe\u00e1, og \u00feeir bi\u00f0ja til Drottins og sn\u00faa s\u00e9r \u00ed \u00e1ttina til borgarinnar, sem \u00fe\u00fa hefir \u00fatvali\u00f0, og h\u00fassins, sem \u00e9g hefi reist \u00fe\u00ednu nafni,<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00e1 himnum b\u00e6n \u00feeirra og gr\u00e1tbei\u00f0ni og r\u00e9tt \u00fe\u00fa hlut \u00feeirra.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>Ef \u00feeir syndga \u00ed gegn \u00fe\u00e9r \u00fev\u00ed a\u00f0 enginn er s\u00e1, er eigi syndgi og \u00fe\u00fa rei\u00f0ist \u00feeim og gefur \u00fe\u00e1 \u00e1 vald \u00f3vinum \u00feeirra, og sigurvegarar \u00feeirra flytja \u00fe\u00e1 hernumda til fjandmannalandsins, hvort sem \u00feanga\u00f0 er langt e\u00f0a skammt,<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>og \u00feeir taka sinnaskipti \u00ed landinu, \u00fear sem \u00feeir eru hernumdir, og \u00feeir sn\u00faa s\u00e9r og gr\u00e1tb\u00e6na \u00feig \u00ed landi sigurvegara sinna og segja: V\u00e9r h\u00f6fum syndga\u00f0 og v\u00e9r h\u00f6fum misgj\u00f6rt, v\u00e9r h\u00f6fum breytt \u00f3gu\u00f0lega,<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>og \u00feeir sn\u00faa s\u00e9r til \u00fe\u00edn af \u00f6llu hjarta s\u00ednu og allri s\u00e1lu sinni \u00ed landi \u00f3vina sinna, er hafa flutt \u00fe\u00e1 burt hernumda, og \u00feeir bi\u00f0ja til \u00fe\u00edn og sn\u00faa s\u00e9r \u00ed \u00e1ttina til lands s\u00edns, \u00feess er \u00fe\u00fa gafst fe\u00f0rum \u00feeirra, til borgarinnar, sem \u00fe\u00fa hefir \u00fatvali\u00f0, og til h\u00fassins, sem \u00e9g hefi reist \u00fe\u00ednu nafni,<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 heyr \u00fe\u00fa \u00e1 himnum, a\u00f0setursta\u00f0 \u00fe\u00ednum, b\u00e6n \u00feeirra og gr\u00e1tbei\u00f0ni, og r\u00e9tt \u00fe\u00fa hlut \u00feeirra<a name=\"50\"><span class=\"versanumer\">50<\/span><\/a>og fyrirgef l\u00fd\u00f0 \u00fe\u00ednum \u00fea\u00f0, sem \u00feeir misgj\u00f6r\u00f0u \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, og \u00f6ll afbrotin, sem \u00feeir dr\u00fdg\u00f0u gegn \u00fe\u00e9r, og l\u00e1t \u00fe\u00e1 hlj\u00f3ta miskunn af hendi \u00feeirra, er \u00fe\u00e1 hafa hernumi\u00f0, svo a\u00f0 \u00feeir miskunni \u00feeim.<a name=\"51\"><span class=\"versanumer\">51<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00feeir eru \u00feinn l\u00fd\u00f0ur og \u00fe\u00edn eign, sem \u00fe\u00fa leiddir \u00fat af Egyptalandi, \u00fat \u00far j\u00e1rnbr\u00e6\u00f0sluofninum.<a name=\"52\"><span class=\"versanumer\">52<\/span><\/a>L\u00e1t opin vera augu \u00fe\u00edn fyrir gr\u00e1tbei\u00f0ni \u00fej\u00f3ns \u00fe\u00edns og gr\u00e1tbei\u00f0ni l\u00fd\u00f0s \u00fe\u00edns \u00cdsraels, a\u00f0 \u00fe\u00fa b\u00e6nheyrir \u00fe\u00e1, hven\u00e6r sem \u00feeir bi\u00f0ja \u00feig.<a name=\"53\"><span class=\"versanumer\">53<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir skili\u00f0 \u00fe\u00e1 fr\u00e1 \u00f6llum \u00fej\u00f3\u00f0um jar\u00f0arinnar \u00fe\u00e9r til eignar, eins og \u00fe\u00fa h\u00e9st fyrir \u00fej\u00f3n \u00feinn M\u00f3se, \u00fe\u00e1 er \u00fe\u00fa, Drottinn Gu\u00f0, leiddir fe\u00f0ur vora af Egyptalandi.<a name=\"54\"><span class=\"versanumer\">54<\/span><\/a>\u00deegar Sal\u00f3mon haf\u00f0i loki\u00f0 \u00feessari b\u00e6n og gr\u00e1tbei\u00f0ni til Drottins, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 hann upp frammi fyrir altari Drottins, \u00fear sem hann haf\u00f0i kropi\u00f0 \u00e1 kn\u00e9 og f\u00f3rna\u00f0 h\u00f6ndum til himins.<a name=\"55\"><span class=\"versanumer\">55<\/span><\/a>Gekk hann n\u00fa fram og blessa\u00f0i allan \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0 h\u00e1rri r\u00f6ddu og m\u00e6lti:<a name=\"56\"><span class=\"versanumer\">56<\/span><\/a>Lofa\u00f0ur s\u00e9 Drottinn, sem veitt hefir hv\u00edld l\u00fd\u00f0 s\u00ednum \u00cdsrael, eins og hann hefir heiti\u00f0. Ekkert af \u00f6llum hans d\u00fdrlegu fyrirheitum, sem hann gaf fyrir \u00fej\u00f3n sinn M\u00f3se, hefir brug\u00f0ist.<a name=\"57\"><span class=\"versanumer\">57<\/span><\/a>Drottinn, Gu\u00f0 vor, s\u00e9 me\u00f0 oss, eins og hann hefir veri\u00f0 me\u00f0 fe\u00f0rum vorum. Hann yfirgefi oss ekki og \u00fatsk\u00fafi oss ekki,<a name=\"58\"><span class=\"versanumer\">58<\/span><\/a>heldur hneigi hj\u00f6rtu vor til s\u00edn, svo a\u00f0 v\u00e9r g\u00f6ngum jafnan \u00e1 hans vegum og var\u00f0veitum \u00f6ll hans bo\u00f0or\u00f0, l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, \u00feau er hann lag\u00f0i fyrir fe\u00f0ur vora.<a name=\"59\"><span class=\"versanumer\">59<\/span><\/a>Og \u00feessi m\u00edn or\u00f0, er \u00e9g hefi fram bori\u00f0 fyrir Drottin me\u00f0 gr\u00e1tbei\u00f0ni, s\u00e9u n\u00e1l\u00e6g Drottni, Gu\u00f0i vorum, dag og n\u00f3tt, svo a\u00f0 hann r\u00e9tti hlut \u00fej\u00f3ns s\u00edns og l\u00fd\u00f0s s\u00edns \u00cdsraels, eftir \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00f6rf gj\u00f6rist \u00e1 degi hverjum,<a name=\"60\"><span class=\"versanumer\">60<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni komist a\u00f0 raun um, a\u00f0 Drottinn er Gu\u00f0 og enginn annar.<a name=\"61\"><span class=\"versanumer\">61<\/span><\/a>Hj\u00f6rtu y\u00f0ar s\u00e9u heil og \u00f3skipt gagnvart Drottni, Gu\u00f0i vorum, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r breyti\u00f0 eftir l\u00f6gum hans og haldi\u00f0 bo\u00f0or\u00f0 hans, eins og n\u00fa.<a name=\"62\"><span class=\"versanumer\">62<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00f3rna\u00f0i konungur og allur \u00cdsrael me\u00f0 honum sl\u00e1turf\u00f3rnum frammi fyrir Drottni.<a name=\"63\"><span class=\"versanumer\">63<\/span><\/a>Sal\u00f3mon f\u00f3rna\u00f0i tuttugu og tv\u00f6 \u00fe\u00fasund nautum og hundra\u00f0 og tuttugu \u00fe\u00fasund sau\u00f0um \u00ed heillaf\u00f3rn, er hann f\u00e6r\u00f0i Drottni. \u00deannig v\u00edg\u00f0i konungur og allir \u00cdsraelsmenn h\u00fas Drottins.<a name=\"64\"><span class=\"versanumer\">64<\/span><\/a>\u00deann dag v\u00edg\u00f0i konungur mi\u00f0hluta forgar\u00f0sins, sem er fyrir framan h\u00fas Drottins, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fear f\u00f3rna\u00f0i hann brennif\u00f3rninni og matf\u00f3rninni og hinum feitu stykkjum heillaf\u00f3rnanna, \u00fev\u00ed a\u00f0 eiraltari\u00f0, sem st\u00f3\u00f0 frammi fyrir Drottni, var of l\u00edti\u00f0 til \u00feess a\u00f0 geta teki\u00f0 brennif\u00f3rnina, matf\u00f3rnina og hin feitu stykki heillaf\u00f3rnanna.<a name=\"65\"><span class=\"versanumer\">65<\/span><\/a>\u00deannig h\u00e9lt Sal\u00f3mon h\u00e1t\u00ed\u00f0ina og allur \u00cdsrael me\u00f0 honum, mikill s\u00f6fnu\u00f0ur, nor\u00f0an \u00fea\u00f0an er lei\u00f0 liggur til Hamat, allt su\u00f0ur til Egyptalands\u00e1r. \u00deeir h\u00e9ldu h\u00e1t\u00ed\u00f0 frammi fyrir Drottni, Gu\u00f0i vorum, \u00ed sj\u00f6 daga, og a\u00f0ra sj\u00f6 daga, fj\u00f3rt\u00e1n daga alls.<a name=\"66\"><span class=\"versanumer\">66<\/span><\/a>En \u00e1ttunda daginn l\u00e9t hann f\u00f3lki\u00f0 fr\u00e1 s\u00e9r fara. Og \u00feeir kv\u00f6ddu konung og f\u00f3ru heim til s\u00edn, gla\u00f0ir og \u00ed g\u00f3\u00f0u skapi yfir \u00f6llum \u00feeim g\u00e6\u00f0um, sem Drottinn haf\u00f0i veitt Dav\u00ed\u00f0 \u00fej\u00f3ni s\u00ednum og l\u00fd\u00f0 s\u00ednum \u00cdsrael.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>8.1<\/b> Flytja \u00f6rkina 2Sam 6.12-17<br \/>\n<b>8.6<\/b> Undir ker\u00fabunum 1Kon 6.23-28+<br \/>\n<b>8.9<\/b> Tv\u00e6r steint\u00f6flur 2M\u00f3s 25.16; 40.20; 5M\u00f3s 10.5; Heb 9.4<br \/>\n<b>8.10<\/b> Sk\u00fd 2M\u00f3s 40.34+<br \/>\n<b>8.12<\/b> Myrkur Slm 18.12<br \/>\n<b>8.13<\/b> Eil\u00edfur Slm 132.14<br \/>\n<b>8.16<\/b> \u00c9g \u00fatvaldi Dav\u00ed\u00f0 1Sam 16<br \/>\n<b>8.18<\/b> Vel ger\u00f0ir \u00fe\u00fa 2Sam 7.1-7<br \/>\n<b>8.23<\/b> Enginn gu\u00f0 er sem \u00fe\u00fa 5M\u00f3s 4.35,39; 6.4; 7.9<br \/>\n<b>8.25<\/b> Ni\u00f0jar \u00fe\u00ednir 1Kon 2.4+<br \/>\n<b>8.27<\/b> B\u00fdr Gu\u00f0 \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni? sbr J\u00f3h 1.14; Post 17.24; Opb 21.3 \u2013 himininn Jes 66.1; Jer 23.24; Post 7.49<br \/>\n<b>8.29<\/b> Nafn mitt b\u00faa 5M\u00f3s 12.5,11, sbr Esk 48.35; Opb 21.22<br \/>\n<b>8.33<\/b> \u00d3sigur 3M\u00f3s 26.17; 5M\u00f3s 28.25; J\u00f3s 7<br \/>\n<b>8.35<\/b> Rignir ekki 1Kon 17-18; 3M\u00f3s 26.19; 5M\u00f3s 11.17; 28.24; Jer 3.3; Opb 11.6<br \/>\n<b>8.37<\/b> Hungursney\u00f0, dreps\u00f3tt &#8230; 3M\u00f3s 26.16,25; 5M\u00f3s 28.21-22,38,42<br \/>\n<b>8.41<\/b> \u00datlendingur 3M\u00f3s 19.34; 2Kon 5; Jes 2.2-4;56.6-7; J\u00f3nas; Sak 8.20-23; Rut; Gal 3.28<br \/>\n<b>8.44<\/b> Til \u00feessarar borgar Dan 6.11<br \/>\n<b>8.46<\/b> Sem fangar  1Kon 14.15; 3M\u00f3s 26.33-34; 5M\u00f3s 28.63-64; 30.1-2<br \/>\n<b>8.51<\/b> Egyptaland, j\u00e1rnbr\u00e6\u00f0sluofn 5M\u00f3s 4.20; Jer 11.4<br \/>\n<b>8.53<\/b> Greint hana fr\u00e1 5M\u00f3s 7.6<br \/>\n<b>8.56<\/b> Gri\u00f0asta\u00f0 5M\u00f3s 12.10; J\u00f3s 21.44 \u2013 \u00f3brig\u00f0ul fyrirheit J\u00f3s 21.45; 23.14; 1Sam 3.19; 2Kon 10.10; Jes 55.10-11<br \/>\n<b>8.57<\/b> Me\u00f0 okkur 5M\u00f3s 31.6; J\u00f3s 1.5; Jes 7.14<br \/>\n<b>8.60<\/b> Enginn annar gu\u00f0 1Kon 8.23+; Jes 45.5-6<br \/>\n<b>8.61<\/b> Heilum hug 1Kon 11.4; 15.3,14; sbr H\u00f3s 10.2; Sl 12.3<br \/>\n<b>8.63<\/b> V\u00edgsla 4M\u00f3s 7; Esr 6.16-17<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00de\u00e1 safna\u00f0i Sal\u00f3mon saman \u00f6ldungum \u00cdsraels og \u00f6llum foringjum kyn\u00fe\u00e1ttanna, \u00e6tth\u00f6f\u00f0ingjum \u00cdsraelsmanna, til s\u00edn \u00ed Jer\u00fasalem til \u00feess a\u00f0 flytja s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Drottins upp eftir fr\u00e1 Dav\u00ed\u00f0sborg, \u00fea\u00f0 er S\u00edon.2\u00de\u00e1 s\u00f6fnu\u00f0ust allir \u00cdsraelsmenn til Sal\u00f3mons konungs \u00ed etan\u00edm-m\u00e1nu\u00f0i \u00e1 h\u00e1t\u00ed\u00f0inni er s\u00e1 m\u00e1nu\u00f0ur hinn sj\u00f6undi .3\u00de\u00e1 komu allir \u00f6ldungar \u00cdsraels, og prestarnir t\u00f3ku \u00f6rkina.4Og \u00feeir fluttu \u00f6rk Drottins og samfundatjaldi\u00f0 og \u00f6ll hin helgu \u00e1h\u00f6ld, er \u00ed tjaldinu voru. Fluttu prestarnir og lev\u00edtarnir \u00feau upp eftir.5En Sal\u00f3mon konungur og allur \u00cdsraelss\u00f6fnu\u00f0ur, er safnast haf\u00f0i til hans, st\u00f3\u00f0 \u00e1samt honum frammi fyrir \u00f6rkinni. F\u00f3rnu\u00f0u \u00feeir sau\u00f0um og nautum, er eigi var\u00f0 t\u00f6lu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/fyrri-konungabok-8-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1645","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1645","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1645"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1645\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1645"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}