{"id":1627,"date":"2017-11-18T20:18:04","date_gmt":"2017-11-18T20:18:04","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-samuelsbok-14-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:10:45","modified_gmt":"2021-06-06T11:10:45","slug":"sidari-samuelsbok-14-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-samuelsbok-14-kafli\/","title":{"rendered":"S\u00ed\u00f0ari Sam\u00faelsb\u00f3k 14. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Og er J\u00f3ab Ser\u00fajuson s\u00e1, a\u00f0 Absalon var konungi enn hjartf\u00f3lginn,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 sendi J\u00f3ab til Tek\u00f3a og l\u00e9t s\u00e6kja \u00feanga\u00f0 vitra konu og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u00de\u00fa skalt l\u00e1ta sem \u00fe\u00fa s\u00e9rt harm\u00ferungin og kl\u00e6\u00f0ast sorgarb\u00faningi. Smyr \u00feig ekki me\u00f0 ol\u00edu, heldur vertu eins og kona, er um langan t\u00edma hefir syrgt l\u00e1tinn mann.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Gakk s\u00ed\u00f0an fyrir konung og m\u00e6l til hans \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: og J\u00f3ab lag\u00f0i henni or\u00f0 \u00ed munn.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an gekk konan fr\u00e1 Tek\u00f3a fyrir konung, f\u00e9ll fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna til jar\u00f0ar og s\u00fdndi honum lotningu og m\u00e6lti: Hj\u00e1lpa m\u00e9r, konungur!<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Konungur sag\u00f0i vi\u00f0 hana: Hva\u00f0 gengur a\u00f0 \u00fe\u00e9r? H\u00fan svara\u00f0i: \u00c6, \u00e9g er ekkja og ma\u00f0ur minn er d\u00e1inn.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Amb\u00e1tt \u00fe\u00edn \u00e1tti tvo sonu. \u00deeir ur\u00f0u miss\u00e1ttir \u00fati \u00e1 akri og enginn var til a\u00f0 skilja \u00fe\u00e1. Laust \u00fe\u00e1 annar \u00feeirra br\u00f3\u00f0ur sinn og drap hann.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00fe\u00e1 reis \u00f6ll \u00e6ttin upp \u00e1 m\u00f3ti amb\u00e1tt \u00feinni og sag\u00f0i: Sel fram br\u00f3\u00f0urmor\u00f0ingjann, og munum v\u00e9r drepa hann fyrir l\u00edf br\u00f3\u00f0ur hans, er hann myrti, og tort\u00edma erfingjanum um lei\u00f0. Og \u00feann veg vilja \u00feeir sl\u00f6kkva \u00feann neista, sem m\u00e9r er eftir skilinn, svo a\u00f0 ma\u00f0urinn minn l\u00e1ti hvorki eftir sig nafn n\u00e9 ni\u00f0ja \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og konungur sag\u00f0i vi\u00f0 konuna: Far \u00fe\u00fa heim til \u00fe\u00edn. Skipa mun \u00e9g fyrir um m\u00e1l \u00feitt.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En konan fr\u00e1 Tek\u00f3a sag\u00f0i vi\u00f0 konunginn: \u00c1 m\u00e9r hv\u00edli sektin, minn herra konungur, og \u00e1 \u00e6ttf\u00f3lki m\u00ednu, en konungurinn s\u00e9 s\u00fdkn saka og h\u00e1s\u00e6ti hans.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i konungur: Ef einhver segir eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00feig, \u00fe\u00e1 kom \u00fe\u00fa me\u00f0 hann til m\u00edn, og skal hann eigi framar \u00e1reita \u00feig.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti h\u00fan: Minnstu, konungur, Drottins, Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, svo a\u00f0 hefnandinn gj\u00f6ri ekki enn meira tj\u00f3n, og \u00feeir tort\u00edmi ekki syni m\u00ednum. Hann svara\u00f0i: Svo sannarlega sem Drottinn lifir, skal ekki eitt h\u00e1r sonar \u00fe\u00edns falla til jar\u00f0ar.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti konan: Leyf \u00fe\u00fa amb\u00e1tt \u00feinni a\u00f0 tala eitt or\u00f0 vi\u00f0 \u00feig, minn herra konungur! Hann svara\u00f0i: Tala \u00fe\u00fa.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti konan: Hvers vegna hefir \u00fe\u00fa sl\u00edkt \u00ed hyggju gegn Gu\u00f0s l\u00fd\u00f0? Og fyrst konungurinn hefir kve\u00f0i\u00f0 upp \u00feennan d\u00f3m, \u00fe\u00e1 er hann sem sekur ma\u00f0ur, \u00fear sem hann l\u00e6tur ekki \u00fatlaga sinn hverfa heim aftur.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 deyja hlj\u00f3tum v\u00e9r, og v\u00e9r erum eins og vatn, sem hellt er \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina og eigi ver\u00f0ur n\u00e1\u00f0 upp aftur, og Gu\u00f0 hr\u00edfur eigi burt l\u00edf \u00feess manns, sem \u00e1 \u00fea\u00f0 hyggur a\u00f0 l\u00e1ta ekki \u00fatlagann vera lengur \u00fatsk\u00fafa\u00f0an fr\u00e1 s\u00e9r.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En fyrir \u00fev\u00ed er \u00e9g komin til \u00feess a\u00f0 tala \u00feessi or\u00f0 vi\u00f0 minn herra konunginn, a\u00f0 f\u00f3lki\u00f0 gj\u00f6r\u00f0i mig hr\u00e6dda. \u00de\u00e1 hugsa\u00f0i amb\u00e1tt \u00fe\u00edn me\u00f0 s\u00e9r: \u00c9g skal tala vi\u00f0 konunginn. M\u00e1 vera a\u00f0 konungurinn gj\u00f6ri b\u00f3n amb\u00e1ttar sinnar.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 konungurinn mun gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 b\u00f3n amb\u00e1ttar sinnar a\u00f0 frelsa hana af hendi mannsins, sem leitast vi\u00f0 a\u00f0 afm\u00e1 b\u00e6\u00f0i mig og son minn \u00far arfleif\u00f0 Gu\u00f0s.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00de\u00e1 hugsa\u00f0i \u00feerna \u00fe\u00edn me\u00f0 sj\u00e1lfri s\u00e9r: Or\u00f0 m\u00edns herra konungsins skulu ver\u00f0a m\u00e9r til fr\u00f3unar, \u00fev\u00ed a\u00f0 minn herra konungurinn l\u00edkist \u00ed \u00fev\u00ed engli Gu\u00f0s, a\u00f0 hann hl\u00fd\u00f0ir \u00e1 gott og illt. Og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn s\u00e9 me\u00f0 \u00fe\u00e9r.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00de\u00e1 svara\u00f0i konungur og sag\u00f0i vi\u00f0 konuna: Leyn \u00fe\u00fa mig engu, er \u00e9g vil spyrja \u00feig. Konan svara\u00f0i: Tala \u00fe\u00fa, minn herra konungur!<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00de\u00e1 m\u00e6lti konungur: Er ekki J\u00f3ab \u00ed r\u00e1\u00f0um me\u00f0 \u00fe\u00e9r um allt \u00feetta? Konan svara\u00f0i og sag\u00f0i: Svo sannarlega sem \u00fe\u00fa lifir, minn herra konungur, er eigi unnt a\u00f0 fara utan um nokku\u00f0 af \u00fev\u00ed, sem minn herra konugurinn hefir sagt, hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri handar. \u00dea\u00f0 var einmitt \u00fej\u00f3nn \u00feinn J\u00f3ab, sem bau\u00f0 m\u00e9r \u00feetta, og hann lag\u00f0i \u00feernu \u00feinni \u00f6ll \u00feessi or\u00f0 \u00ed munn.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>J\u00f3ab \u00fej\u00f3nn \u00feinn hefir gj\u00f6rt \u00feetta til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta m\u00e1li\u00f0 l\u00edta \u00f6\u00f0ru v\u00edsi \u00fat, en herra minn jafnast vi\u00f0 engil Gu\u00f0s a\u00f0 visku, svo a\u00f0 hann veit allt, sem vi\u00f0 ber \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i konungur vi\u00f0 J\u00f3ab: Gott og vel, \u00e9g skal gj\u00f6ra \u00fea\u00f0. Far \u00fe\u00fa og s\u00e6k \u00fe\u00fa sveininn Absalon.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00e9ll J\u00f3ab fram \u00e1 andlit sitt til jar\u00f0ar og laut konungi og kvaddi hann og m\u00e6lti: N\u00fa veit \u00fej\u00f3nn \u00feinn, a\u00f0 \u00e9g hefi fundi\u00f0 n\u00e1\u00f0 \u00ed augum m\u00edns herra konungsins, \u00fear sem konungurinn hefir l\u00e1ti\u00f0 a\u00f0 or\u00f0um \u00fej\u00f3ns s\u00edns.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an lag\u00f0i J\u00f3ab af sta\u00f0 og f\u00f3r til Ges\u00far og haf\u00f0i Absalon aftur heim me\u00f0 s\u00e9r til Jer\u00fasalem.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>En konungur sag\u00f0i: Fari hann heim til s\u00edn, en fyrir m\u00edn augu skal hann ekki koma. \u00de\u00e1 f\u00f3r Absalon heim til s\u00edn og kom ekki fyrir augu konungs.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00cd \u00f6llum \u00cdsrael var enginn ma\u00f0ur eins fr\u00ed\u00f0ur og Absalon, og f\u00f3r miki\u00f0 or\u00f0 af \u00fev\u00ed. Fr\u00e1 hvirfli til ilja voru engin l\u00fdti \u00e1 honum.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Og \u00feegar hann l\u00e9t skera h\u00e1r sitt, en hann l\u00e9t jafnan skera \u00fea\u00f0 \u00e1 \u00e1rs fresti, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 var\u00f0 honum svo \u00feungt, a\u00f0 hann hlaut a\u00f0 l\u00e1ta skera \u00fea\u00f0, \u00fe\u00e1 v\u00f3 h\u00e1ri\u00f0 af h\u00f6f\u00f0i hans tv\u00f6 hundru\u00f0 sikla \u00e1 konungsvog.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og Absalon f\u00e6ddust \u00fer\u00edr synir og ein d\u00f3ttir, er Tamar h\u00e9t. H\u00fan var kona fr\u00ed\u00f0 s\u00fdnum.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Absalon var svo tv\u00f6 \u00e1r \u00ed Jer\u00fasalem, a\u00f0 hann kom ekki fyrir augu konungs.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sendi hann bo\u00f0 til J\u00f3abs \u00feess erindis, a\u00f0 hann f\u00e6ri til konungs, en J\u00f3ab vildi ekki koma til hans. Sendi hann \u00fe\u00e1 \u00ed anna\u00f0 sinn, en hann vildi ekki koma.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sag\u00f0i Absalon vi\u00f0 \u00fej\u00f3na s\u00edna: Sj\u00e1i\u00f0, J\u00f3ab \u00e1 akur \u00e1fastan vi\u00f0 minn og \u00fear hefir hann bygg. Fari\u00f0 og kveiki\u00f0 \u00ed honum. Og \u00fej\u00f3nar Absalons kveiktu \u00ed akrinum.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00f3r J\u00f3ab af sta\u00f0 og kom \u00ed h\u00fas Absalons og sag\u00f0i vi\u00f0 hann: Hv\u00ed hafa \u00fej\u00f3nar \u00fe\u00ednir kveikt \u00ed akri m\u00ednum?<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Absalon sag\u00f0i vi\u00f0 J\u00f3ab: Sj\u00e1, \u00e9g sendi bo\u00f0 til \u00fe\u00edn og l\u00e9t segja: Kom \u00fe\u00fa hinga\u00f0 og vil \u00e9g senda \u00feig til konungs me\u00f0 \u00feessa or\u00f0sending: Til hvers kom \u00e9g fr\u00e1 Ges\u00far? Betra v\u00e6ri m\u00e9r a\u00f0 vera \u00fear enn. En n\u00fa vil \u00e9g f\u00e1 a\u00f0 koma fyrir augu konungs. S\u00e9 \u00e9g sekur, \u00fe\u00e1 drepi hann mig.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00de\u00e1 gekk J\u00f3ab fyrir konung og sag\u00f0i honum \u00feetta. L\u00e9t hann \u00fe\u00e1 kalla Absalon, og gekk hann fyrir konung og laut \u00e1 andlit sitt til jar\u00f0ar fyrir konungi. Og konungur kyssti Absalon.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>14.2<\/b> L\u00e1tast 2Sam 12.1-6<br \/>\n<b>14.4<\/b> Hj\u00e1lpa\u00f0u m\u00e9r 2Kon 6.26+<br \/>\n<b>14.5<\/b> Eiginma\u00f0ur minn d\u00f3 2Kon 4.1<br \/>\n<b>14.6<\/b> Lenti saman 1M\u00f3s 4.8<br \/>\n<b>14.7<\/b> Gl\u00f3\u00f0 Jes 42.3; Matt 12.20<br \/>\n<b>14.9<\/b> S\u00f6kin 1Sam 25.24<br \/>\n<b>14.11<\/b> Nefni nafn Drottins 2Sam 18.28; 1M\u00f3s 21.23; 3M\u00f3s 19.12; 1Sam 24.22; 1Kon 1.17; Slm 63.12 \u2013 ekki eitt h\u00e1r 1Sam 14.45<br \/>\n<b>14.13<\/b> \u00datleg\u00f0 2Sam 13.37<br \/>\n<b>14.17<\/b> Eins og  engill Gu\u00f0s 1Sam 29.9+<br \/>\n<b>14.20<\/b> Vitur 1Kon 3.28 \u2013 veit allt 2Sam 18.13; sbr Okv 25.2<br \/>\n<b>14.24<\/b> Ekki fyrir mig 2M\u00f3s 10.28<br \/>\n<b>14.25<\/b> Fr\u00ed\u00f0ur 1Sam 9.2+<br \/>\n<b>14.27<\/b> \u00der\u00edr synir 2Sam 18.18<br \/>\n<b>14.30<\/b> Kveiki\u00f0 \u00ed honum D\u00f3m 15.4-5<br \/>\n<b>14.32<\/b> Drepi mig 1Sam 20.8<br \/>\n<b>14.33<\/b> Kyssti Absalon 2Sam 15.5; 19.40; 20.9<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Og er J\u00f3ab Ser\u00fajuson s\u00e1, a\u00f0 Absalon var konungi enn hjartf\u00f3lginn,2\u00fe\u00e1 sendi J\u00f3ab til Tek\u00f3a og l\u00e9t s\u00e6kja \u00feanga\u00f0 vitra konu og sag\u00f0i vi\u00f0 hana: \u00de\u00fa skalt l\u00e1ta sem \u00fe\u00fa s\u00e9rt harm\u00ferungin og kl\u00e6\u00f0ast sorgarb\u00faningi. Smyr \u00feig ekki me\u00f0 ol\u00edu, heldur vertu eins og kona, er um langan t\u00edma hefir syrgt l\u00e1tinn mann.3Gakk s\u00ed\u00f0an fyrir konung og m\u00e6l til hans \u00e1 \u00feessa lei\u00f0: og J\u00f3ab lag\u00f0i henni or\u00f0 \u00ed munn.4S\u00ed\u00f0an gekk konan fr\u00e1 Tek\u00f3a fyrir konung, f\u00e9ll fram \u00e1 \u00e1sj\u00f3nu s\u00edna til jar\u00f0ar og s\u00fdndi honum lotningu og m\u00e6lti: Hj\u00e1lpa m\u00e9r, konungur!5Konungur sag\u00f0i vi\u00f0 hana: Hva\u00f0 gengur a\u00f0 \u00fe\u00e9r? H\u00fan <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/sidari-samuelsbok-14-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1627","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1627","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1627"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1627\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1627"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}