{"id":1577,"date":"2017-11-18T20:17:50","date_gmt":"2017-11-18T20:17:50","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/domarabokin-20-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:50:38","modified_gmt":"2021-06-06T10:50:38","slug":"domarabokin-20-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/domarabokin-20-kafli\/","title":{"rendered":"D\u00f3marab\u00f3kin 20. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00de\u00e1 l\u00f6g\u00f0u allir \u00cdsraelsmenn af sta\u00f0, og safna\u00f0ist l\u00fd\u00f0urinn saman sem einn ma\u00f0ur fr\u00e1 Dan til Beerseba, svo og G\u00edlea\u00f0land, fram fyrir Drottin \u00ed Mispa.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Og h\u00f6f\u00f0ingjar alls l\u00fd\u00f0sins, allar \u00e6ttkv\u00edslir \u00cdsraels, gengu fram \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i Gu\u00f0s f\u00f3lks fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund f\u00f3tgangandi menn, vopnum b\u00fanir.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Benjam\u00edns synir fr\u00e9ttu, a\u00f0 \u00cdsraelsmenn v\u00e6ru farnir upp til Mispa. \u00cdsraelsmenn s\u00f6g\u00f0u: Segi\u00f0 fr\u00e1, hvernig atvika\u00f0ist \u00f3h\u00e6fuverk \u00feetta.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>\u00de\u00e1 svara\u00f0i lev\u00edtinn, ma\u00f0ur konunnar, er myrt haf\u00f0i veri\u00f0, og sag\u00f0i: \u00c9g kom til G\u00edbeu, sem heyrir Benjam\u00edn, \u00e1samt hj\u00e1konu minni og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 vera \u00fear n\u00e6tursakir.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e1 risu G\u00edbeub\u00faar upp \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r og umkringdu h\u00fasi\u00f0 um n\u00f3ttina og l\u00e9tu \u00f3fri\u00f0lega. Mig hug\u00f0ust \u00feeir a\u00f0 drepa og hj\u00e1konu minni nau\u00f0gu\u00f0u \u00feeir svo, a\u00f0 h\u00fan bei\u00f0 bana af.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>\u00de\u00e1 t\u00f3k \u00e9g hj\u00e1konu m\u00edna og hluta\u00f0i hana sundur og sendi hana \u00fat um allt arfleif\u00f0arland \u00cdsraels, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u frami\u00f0 n\u00ed\u00f0ingsverk og \u00f3h\u00e6fu \u00ed \u00cdsrael.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00de\u00e9r eru\u00f0 h\u00e9r allir, \u00cdsraelsmenn! Kve\u00f0i\u00f0 n\u00fa upp till\u00f6gur y\u00f0ar og r\u00e1\u00f0!<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>\u00de\u00e1 reis upp allur l\u00fd\u00f0ur, sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri, og sag\u00f0i: Enginn af oss skal fara heim til s\u00edn og enginn sn\u00faa heim til h\u00fass s\u00edns.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og n\u00fa skulum v\u00e9r fara \u00feannig a\u00f0 vi\u00f0 G\u00edbeu: V\u00e9r skulum r\u00e1\u00f0ast gegn henni eftir hlutkesti.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>V\u00e9r skulum taka t\u00edu menn af hundra\u00f0i af \u00f6llum \u00e6ttkv\u00edslum \u00cdsraels og hundra\u00f0 af \u00fe\u00fasundi og \u00fe\u00fasund af t\u00edu \u00fe\u00fasundum til \u00feess a\u00f0 s\u00e6kja vistir handa li\u00f0inu. \u00deegar \u00feeir koma aftur, ver\u00f0ur fari\u00f0 me\u00f0 G\u00edbeu \u00ed Benjam\u00edn me\u00f0 \u00f6llu svo sem maklegt er fyrir \u00f3h\u00e6fuverk \u00fea\u00f0, er \u00feeir hafa frami\u00f0 \u00ed \u00cdsrael.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00f6fnu\u00f0ust allir \u00cdsraelsmenn saman \u00ed m\u00f3ti borginni, allir samhuga sem einn ma\u00f0ur v\u00e6ri.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00c6ttkv\u00edslir \u00cdsraels sendu menn um alla \u00e6ttkv\u00edsl Benjam\u00edns og l\u00e9tu \u00fe\u00e1 segja: Hv\u00edl\u00edk \u00f3h\u00e6fa er \u00feetta, sem framin hefir veri\u00f0 y\u00f0ar \u00e1 me\u00f0al.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Framselji\u00f0 \u00fev\u00ed hrakmennin \u00ed G\u00edbeu, svo a\u00f0 v\u00e9r f\u00e1um drepi\u00f0 \u00fe\u00e1 og uppr\u00e6tt hi\u00f0 illa \u00far \u00cdsrael. En Benjam\u00edns synir vildu ekki gefa gaum or\u00f0um br\u00e6\u00f0ra sinna, \u00cdsraelsmanna.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>S\u00f6fnu\u00f0ust Benjam\u00edns synir \u00fe\u00e1 saman \u00far borgunum til G\u00edbeu til \u00feess a\u00f0 fara \u00ed herna\u00f0 m\u00f3ti \u00cdsraelsm\u00f6nnum.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En Benjam\u00edns synir, \u00feeir er \u00far borgunum komu, voru \u00e1 \u00feeim degi tuttugu og sex \u00fe\u00fasundir vopna\u00f0ra manna a\u00f0 t\u00f6lu, auk G\u00edbeu-b\u00faa, en \u00feeir voru sj\u00f6 hundru\u00f0 a\u00f0 t\u00f6lu, einvala li\u00f0.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Af \u00f6llu \u00feessu li\u00f0i voru sj\u00f6 hundru\u00f0 \u00farvals menn \u00f6rvhentir. H\u00e6f\u00f0u \u00feeir allir h\u00e1rr\u00e9tt me\u00f0 sl\u00f6ngusteini og misstu ekki.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>En \u00cdsraelsmenn voru a\u00f0 t\u00f6lu, fyrir utan Benjam\u00edn, fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund vopna\u00f0ra manna, og voru \u00feeir allir hermenn.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00cdsraelsmenn t\u00f3ku sig upp og f\u00f3ru upp til Betel og gengu til fr\u00e9tta vi\u00f0 Gu\u00f0 og s\u00f6g\u00f0u: Hver af oss skal fyrstur fara \u00ed herna\u00f0inn m\u00f3ti Benjam\u00edns sonum? Drottinn svara\u00f0i: J\u00fada skal fyrstur fara.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>\u00cdsraelsmenn t\u00f3ku sig upp um morguninn og settu herb\u00fa\u00f0ir s\u00ednar hj\u00e1 G\u00edbeu.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Og \u00cdsraelsmenn f\u00f3ru til bardaga \u00ed m\u00f3ti Benjam\u00edn, og \u00cdsraelsmenn fylktu s\u00e9r til orustu gegn \u00feeim n\u00e1l\u00e6gt G\u00edbeu.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00f3ru Benjam\u00edns synir \u00fat \u00far G\u00edbeu og l\u00f6g\u00f0u a\u00f0 velli tuttugu og tv\u00e6r \u00fe\u00fasundir manna af \u00cdsrael \u00e1 \u00feeim degi.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>En li\u00f0 \u00cdsraelsmanna herti upp hugann, og fylktu \u00feeir s\u00e9r af n\u00fdju til orustu \u00e1 \u00feeim sta\u00f0, sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u fylkt s\u00e9r hinn fyrri daginn.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Og \u00cdsraelsmenn f\u00f3ru upp eftir og gr\u00e9tu frammi fyrir Drottni allt til kvelds, og \u00feeir gengu til fr\u00e9tta vi\u00f0 Drottin og s\u00f6g\u00f0u: Eigum v\u00e9r enn a\u00f0 leggja til orustu vi\u00f0 sonu Benjam\u00edns, br\u00f3\u00f0ur vors? Drottinn svara\u00f0i: Fari\u00f0 \u00e1 m\u00f3ti \u00feeim.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>F\u00f3ru \u00cdsraelsmenn n\u00fa \u00ed m\u00f3ti Benjam\u00edns sonum \u00e1 \u00f6\u00f0rum degi.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Og Benjam\u00edn f\u00f3r \u00fat \u00ed m\u00f3ti \u00feeim \u00far G\u00edbeu \u00e1 \u00f6\u00f0rum degi, og l\u00f6g\u00f0u \u00feeir enn a\u00f0 velli \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasund manns af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, og voru \u00feeir allir vopnum b\u00fanir.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00f3ru allir \u00cdsraelsmenn og allur l\u00fd\u00f0urinn upp eftir og komu til Betel og h\u00f6f\u00f0ust \u00fear vi\u00f0 gr\u00e1tandi fyrir augliti Drottins og f\u00f6stu\u00f0u \u00feann dag til kvelds. Og \u00feeir f\u00f3rnu\u00f0u brennif\u00f3rnum og heillaf\u00f3rnum fyrir augliti Drottins.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an gengu \u00cdsraelsmenn til fr\u00e9tta vi\u00f0 Drottin, en \u00fear var s\u00e1ttm\u00e1ls\u00f6rk Gu\u00f0s \u00ed \u00fe\u00e1 daga,<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>og P\u00ednehas, sonur Eleasars Aronssonar, gegndi \u00fej\u00f3nustu fyrir augliti hans \u00ed \u00fe\u00e1 daga. \u00deeir s\u00f6g\u00f0u: Eigum v\u00e9r enn a\u00f0 leggja til orustu vi\u00f0 sonu Benjam\u00edns, br\u00f3\u00f0ur vors, e\u00f0a eigum v\u00e9r a\u00f0 h\u00e6tta? Drottinn svara\u00f0i: Fari\u00f0, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00e1 morgun mun \u00e9g gefa \u00fe\u00e1 \u00ed y\u00f0ar hendur.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>N\u00fa setti \u00cdsrael menn \u00ed launs\u00e1t hringinn \u00ed kring um G\u00edbeu.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>Og \u00cdsraelsmenn f\u00f3ru \u00ed m\u00f3ti Benjam\u00edns sonum \u00e1 \u00feri\u00f0ja degi og fylktu \u00feeir s\u00e9r gegnt G\u00edbeu, eins og hin fyrri skiptin.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00de\u00e1 f\u00f3ru Benjam\u00edns synir \u00fat \u00e1 m\u00f3ti li\u00f0inu og l\u00e9tu teygjast burt fr\u00e1 borginni og t\u00f3ku a\u00f0 fella nokkra af li\u00f0inu, eins og hin fyrri skiptin, \u00fati \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0vegunum  annar \u00feeirra liggur upp til Betel, en hinn til G\u00edbeu yfir haglendi\u00f0 , um \u00ferj\u00e1t\u00edu manns af \u00cdsrael.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>\u00de\u00e1 hugsu\u00f0u Benjam\u00edns synir: \u00deeir b\u00ed\u00f0a \u00f3sigur fyrir oss eins og \u00ed fyrsta sinni\u00f0. En \u00cdsraelsmenn h\u00f6f\u00f0u sagt: V\u00e9r skulum fl\u00fdja, svo a\u00f0 v\u00e9r f\u00e1um teygt \u00fe\u00e1 fr\u00e1 borginni \u00fat \u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0vegina.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Og allir \u00cdsraelsmenn t\u00f3ku sig upp \u00far s\u00ednum sta\u00f0 og fylktu s\u00e9r \u00ed Baal Tamar, og \u00feeir \u00cdsraelsmanna, er \u00ed launs\u00e1t voru, \u00feustu fram \u00far s\u00ednum sta\u00f0 fyrir vestan Geba.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st s\u00f3ttu t\u00edu \u00fe\u00fasundir einvala li\u00f0s \u00far \u00f6llum \u00cdsrael fram m\u00f3ti G\u00edbeu og t\u00f3kst \u00fear h\u00f6r\u00f0 orusta, en hinir vissu ekki a\u00f0 \u00f3g\u00e6fan vof\u00f0i yfir \u00feeim.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\u00deannig l\u00e9t Drottinn Benjam\u00edn b\u00ed\u00f0a \u00f3sigur fyrir \u00cdsrael, og \u00cdsraelsmenn dr\u00e1pu tuttugu og fimm \u00fe\u00fasund og eitt hundra\u00f0 manns af Benjam\u00edn \u00e1 \u00feeim degi, og voru \u00feeir allir vopnum b\u00fanir.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>\u00de\u00e1 s\u00e1u Benjam\u00edns synir, a\u00f0 \u00feeir h\u00f6f\u00f0u be\u00f0i\u00f0 \u00f3sigur. \u00cdsraelsmenn g\u00e1fu Benjam\u00edn r\u00fam, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir treystu launs\u00e1tinni, er \u00feeir h\u00f6f\u00f0u sett hj\u00e1 G\u00edbeu.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>En \u00feeir, sem \u00ed launs\u00e1tinni voru, spruttu upp og geystust fram m\u00f3t G\u00edbeu og f\u00f3ru til og felldu alla borgarb\u00faa me\u00f0 sver\u00f0seggjum.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>\u00dea\u00f0 var samkomulag milli \u00cdsraelsmanna og \u00feeirra, er \u00ed launs\u00e1tinni voru, a\u00f0 \u00feeir skyldu l\u00e1ta reyk leggja upp af borginni til merkis.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>\u00deegar n\u00fa \u00cdsraelsmenn snerust \u00e1 fl\u00f3tta \u00ed bardaganum og Benjam\u00edn\u00edtar t\u00f3ku a\u00f0 fella nokkra af \u00cdsraelsm\u00f6nnum, um \u00ferj\u00e1t\u00edu manns, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir hugsu\u00f0u: \u00deeir hafa \u00feegar be\u00f0i\u00f0 \u00f3sigur fyrir oss, eins og \u00ed fyrstu orustunni!<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 t\u00f3k merki\u00f0 a\u00f0 st\u00edga upp af borginni, reykjarm\u00f6kkurinn, og er Benjam\u00edn\u00edtar sneru s\u00e9r vi\u00f0, sj\u00e1, \u00fe\u00e1 st\u00f3\u00f0 \u00f6ll borgin \u00ed bj\u00f6rtu b\u00e1li.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sneru \u00cdsraelsmenn vi\u00f0, og sl\u00f3 felmti \u00e1 Benjam\u00edn\u00edta, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feeir s\u00e1u, a\u00f0 \u00f3g\u00e6fan var yfir \u00fe\u00e1 komin.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>Sneru \u00feeir n\u00fa undan \u00cdsraelsm\u00f6nnum \u00e1 lei\u00f0 til ey\u00f0imerkurinnar, og h\u00e9lst \u00fe\u00f3 orustan \u00e1 h\u00e6lum \u00feeim, og \u00feeir, sem komu \u00far borgunum, dr\u00e1pu \u00fe\u00e1 mitt \u00e1 me\u00f0al \u00feeirra.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>\u00deeir umkringdu Benjam\u00edn\u00edta, eltu \u00fe\u00e1 og tr\u00f3\u00f0u \u00fe\u00e1 undir f\u00f3tum s\u00e9r, \u00fear sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u leita\u00f0 s\u00e9r hv\u00edldar, alla lei\u00f0 austur fyrir G\u00edbeu.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Og \u00fear f\u00e9llu af Benjam\u00edn \u00e1tj\u00e1n \u00fe\u00fasundir manna, og voru \u00fea\u00f0 allt hraustir menn.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sneru \u00feeir \u00e1 fl\u00f3tta til ey\u00f0imerkurinnar a\u00f0 Rimm\u00f3nkletti, og \u00ed eftirleitinni um \u00fej\u00f3\u00f0vegina dr\u00e1pu \u00feeir fimm \u00fe\u00fasund manns, og \u00feeir eltu \u00fe\u00e1 allt til G\u00edde\u00f3m og dr\u00e1pu enn af \u00feeim tv\u00f6 \u00fe\u00fasund manns.<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>\u00deannig f\u00e9llu alls af Benjam\u00edn \u00e1 \u00feeim degi tuttugu og fimm \u00fe\u00fasundir vopnb\u00fainna manna, og voru \u00fea\u00f0 allt hraustir menn.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>\u00de\u00e1 sneru \u00feeir \u00e1 fl\u00f3tta til ey\u00f0imerkurinnar a\u00f0 Rimm\u00f3nkletti, sex hundru\u00f0 manns, og h\u00f6f\u00f0ust vi\u00f0 hj\u00e1 Rimm\u00f3nkletti \u00ed fj\u00f3ra m\u00e1nu\u00f0i.<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>En \u00cdsraelsmenn sneru aftur til Benjam\u00edns sona og felldu \u00fe\u00e1 me\u00f0 sver\u00f0seggjum, b\u00e6\u00f0i menn og f\u00e9na\u00f0 og allt, sem \u00feeir fundu. \u00deeir l\u00f6g\u00f0u og eld \u00ed allar borgirnar, sem fyrir \u00feeim ur\u00f0u.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>20.1<\/b> L\u00fd\u00f0urinn, s\u00f6fnu\u00f0ur D\u00f3m 21.10; 2M\u00f3s 12.3; 16.1; 34.31; 3M\u00f3s 4.13 o.fl.; 4M\u00f3s 1.16; 16.9, o.fl.; J\u00f3s 9.18; 22.18 \u2013 fr\u00e1 Dan D\u00f3m 18.29 \u2013 til Beerseba 1Sam 3.20; 2Sam 17.11 \u2013 Mispa (\u00ed Benjam\u00edn) D\u00f3m 21.1,5; 1Sam 7.5-7; 10.17; 1Makk 3.46<br \/>\n<b>20.4<\/b> Atbur\u00f0irnir \u00ed G\u00edbeu D\u00f3m 19.22-29<br \/>\n<b>20.6<\/b> N\u00ed\u00f0ingsverk \u00ed \u00cdsrael 5M\u00f3s 22.21<br \/>\n<b>20.13<\/b> Uppr\u00e6tt hi\u00f0 illa 5M\u00f3s 13.5+<br \/>\n<b>20.18<\/b> Betel v.26; D\u00f3m 21.2-4 \u2013 til fr\u00e9tta vi\u00f0 Gu\u00f0 v.27; D\u00f3m 1.1+ &#8211; hver &#8230; \u2013 J\u00fada D\u00f3m 1.1-2<br \/>\n<b>20.23<\/b> Kveinu\u00f0u D\u00f3m 2.4; 21.2; 4M\u00f3s 11.4; 14.1; 1Sam 11.4; Esr 10.1<br \/>\n<b>20.26<\/b> Gr\u00e1tandi Jes 3.26; 47.1; Slm 137.1; Esr 9.3 (og fastandi) 1Sam 7.6; 2Sam 12.16; sbr Job 2.13 \u2013 f\u00f3rnir D\u00f3m 21.4<br \/>\n<b>20.28<\/b> P\u00ednehas 4M\u00f3s 25.10-13<br \/>\n<b>20.29<\/b> Launs\u00e1tur D\u00f3m 9.34; J\u00f3s 8.4<br \/>\n<b>20.31<\/b> Burt fr\u00e1 borginni J\u00f3s 8.6,16<br \/>\n<b>20.33<\/b> Geba J\u00f3s 18.24; 1Sam 14.5<br \/>\n<b>20.40<\/b> Reykjarm\u00f6kkur J\u00f3s 8.20<br \/>\n<b>20.48<\/b> Jafnt menn sem f\u00e9na\u00f0 sbr 5M\u00f3s 2.34-35<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00de\u00e1 l\u00f6g\u00f0u allir \u00cdsraelsmenn af sta\u00f0, og safna\u00f0ist l\u00fd\u00f0urinn saman sem einn ma\u00f0ur fr\u00e1 Dan til Beerseba, svo og G\u00edlea\u00f0land, fram fyrir Drottin \u00ed Mispa.2Og h\u00f6f\u00f0ingjar alls l\u00fd\u00f0sins, allar \u00e6ttkv\u00edslir \u00cdsraels, gengu fram \u00ed s\u00f6fnu\u00f0i Gu\u00f0s f\u00f3lks fj\u00f6gur hundru\u00f0 \u00fe\u00fasund f\u00f3tgangandi menn, vopnum b\u00fanir.3Benjam\u00edns synir fr\u00e9ttu, a\u00f0 \u00cdsraelsmenn v\u00e6ru farnir upp til Mispa. \u00cdsraelsmenn s\u00f6g\u00f0u: Segi\u00f0 fr\u00e1, hvernig atvika\u00f0ist \u00f3h\u00e6fuverk \u00feetta.4\u00de\u00e1 svara\u00f0i lev\u00edtinn, ma\u00f0ur konunnar, er myrt haf\u00f0i veri\u00f0, og sag\u00f0i: \u00c9g kom til G\u00edbeu, sem heyrir Benjam\u00edn, \u00e1samt hj\u00e1konu minni og \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 vera \u00fear n\u00e6tursakir.5\u00de\u00e1 risu G\u00edbeub\u00faar upp \u00e1 m\u00f3ti m\u00e9r og umkringdu h\u00fasi\u00f0 um n\u00f3ttina og l\u00e9tu <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/domarabokin-20-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1577","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1577","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1577"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1577\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1577"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}