{"id":1527,"date":"2017-11-18T20:17:41","date_gmt":"2017-11-18T20:17:41","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-28-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:51:16","modified_gmt":"2021-06-06T10:51:16","slug":"fimmta-mosebok-28-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-28-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 28. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir grandg\u00e6filega raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa var\u00f0veitir og heldur allar skipanir hans, \u00fe\u00e6r er \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, \u00fe\u00e1 mun Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefja \u00feig yfir allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0u,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>og \u00fe\u00e1 munu fram vi\u00f0 \u00feig koma og \u00e1 \u00fe\u00e9r r\u00e6tast allar \u00feessar blessanir, ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns:<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Blessa\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur lands \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur f\u00e9na\u00f0ar \u00fe\u00edns, vi\u00f0koma nautgripa \u00feinna og bur\u00f0ir hjar\u00f0ar \u00feinnar.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Blessu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog \u00feitt.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa, \u00feegar \u00fe\u00fa gengur inn, og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa, \u00feegar \u00fe\u00fa gengur \u00fat.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>Drottinn mun l\u00e1ta \u00f3vini \u00fe\u00edna b\u00ed\u00f0a \u00f3sigur fyrir \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00e1 er upp r\u00edsa \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r. Um einn veg munu \u00feeir fara \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, en um sj\u00f6 vegu munu \u00feeir fl\u00fdja undan \u00fe\u00e9r.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Drottinn l\u00e1ti blessun fylgja \u00fe\u00e9r \u00ed for\u00f0ab\u00farum \u00fe\u00ednum og \u00ed \u00f6llu, sem \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur, og hann blessi \u00feig \u00ed landinu, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Drottinn gj\u00f6ri \u00feig a\u00f0 l\u00fd\u00f0, sem heilagur er fyrir honum, eins og hann hefir svari\u00f0 \u00fe\u00e9r, ef \u00fe\u00fa var\u00f0veitir skipanir Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns og gengur \u00e1 hans vegum.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni munu \u00fe\u00e1 sj\u00e1, a\u00f0 \u00fe\u00fa hefir nefndur veri\u00f0 eftir nafni Drottins, og \u00fe\u00e6r munu \u00f3ttast \u00feig.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Drottinn mun veita \u00fe\u00e9r gn\u00e6g\u00f0 g\u00e6\u00f0a \u00ed \u00e1vexti kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00ed \u00e1vexti f\u00e9na\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00ed \u00e1vexti lands \u00fe\u00edns \u00ed landi \u00fev\u00ed, sem Drottinn s\u00f3r fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum a\u00f0 gefa \u00fe\u00e9r.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Drottinn mun upp lj\u00faka fyrir \u00fe\u00e9r for\u00f0ab\u00farinu s\u00ednu hinu g\u00f3\u00f0a, himninum, til \u00feess a\u00f0 gefa landi \u00fe\u00ednu regn \u00e1 r\u00e9ttum t\u00edma og blessa \u00f6ll verk handa \u00feinna, og \u00fe\u00fa munt f\u00e9 l\u00e1na m\u00f6rgum \u00fej\u00f3\u00f0um, en sj\u00e1lfur eigi \u00feurfa a\u00f0 taka f\u00e9 a\u00f0 l\u00e1ni.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Drottinn mun gj\u00f6ra \u00feig a\u00f0 h\u00f6f\u00f0i og eigi a\u00f0 hala, og \u00fe\u00fa skalt st\u00f6\u00f0ugt st\u00edga upp \u00e1 vi\u00f0, en aldrei f\u00e6rast ni\u00f0ur \u00e1 vi\u00f0, ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir skipunum Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, \u00feeim er \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa var\u00f0veitir \u00fe\u00e6r og breytir eftir \u00feeim,<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>og ef \u00fe\u00fa v\u00edkur ekki fr\u00e1 neinu bo\u00f0or\u00f0a \u00feeirra, er \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur \u00ed dag, hvorki til h\u00e6gri n\u00e9 vinstri, til \u00feess a\u00f0 elta a\u00f0ra gu\u00f0i og \u00fej\u00f3na \u00feeim.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>En ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir ekki raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa var\u00f0veitir og haldir allar skipanir hans og l\u00f6g, er \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, \u00fe\u00e1 munu fram vi\u00f0 \u00feig koma og \u00e1 \u00fe\u00e9r hr\u00edna allar \u00feessar b\u00f6lvanir:<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>B\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og b\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>B\u00f6lvu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog \u00feitt.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>B\u00f6lva\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur lands \u00fe\u00edns, vi\u00f0koma nautgripa \u00feinna og bur\u00f0ir hjar\u00f0ar \u00feinnar.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>B\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa, \u00feegar \u00fe\u00fa gengur inn, og b\u00f6lva\u00f0ur ert \u00fe\u00fa, \u00feegar \u00fe\u00fa gengur \u00fat.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Drottinn mun senda yfir \u00feig b\u00f6lvun, skelfing og \u00f3gnun \u00ed \u00f6llu \u00fev\u00ed, er \u00fe\u00fa tekur \u00fe\u00e9r fyrir hendur a\u00f0 gj\u00f6ra, uns \u00fe\u00fa gj\u00f6rey\u00f0ist og fyrirferst skyndilega s\u00f6kum illra verka \u00feinna s\u00f6kum \u00feess, a\u00f0 \u00fe\u00fa yfirgafst mig.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Drottinn mun l\u00e1ta dreps\u00f3ttina vi\u00f0 \u00feig lo\u00f0a, \u00fear til er hann ey\u00f0ir \u00fe\u00e9r \u00far landi \u00fev\u00ed, er \u00fe\u00fa heldur n\u00fa inn \u00ed til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>Drottinn mun sl\u00e1 \u00feig me\u00f0 t\u00e6ring og k\u00f6ldu, hita og bruna, me\u00f0 of\u00feurrki, korndrepi og gulnan, og mun \u00feetta \u00e1s\u00e6kja \u00feig uns \u00fe\u00fa l\u00ed\u00f0ur undir lok.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>Himinninn yfir h\u00f6f\u00f0i \u00fe\u00e9r skal ver\u00f0a sem eir og j\u00f6r\u00f0in undir f\u00f3tum \u00fe\u00e9r sem j\u00e1rn.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>&#8222;\u00cd sta\u00f0 regns mun Drottinn l\u00e1ta ryk og sandfok koma yfir land \u00feitt; \u00fea\u00f0 mun falla yfir \u00feig af himni, uns \u00fe\u00fa ert gj\u00f6reyddur.&#8220;<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Drottinn mun l\u00e1ta \u00feig b\u00ed\u00f0a \u00f3sigur fyrir \u00f3vinum \u00fe\u00ednum. Um einn veg munt \u00fe\u00fa fara \u00ed m\u00f3ti \u00feeim, en um sj\u00f6 vegu munt \u00fe\u00fa fl\u00fdja undan \u00feeim, og \u00fe\u00fa munt ver\u00f0a gr\u00fdla fyrir \u00f6ll konungsr\u00edki jar\u00f0arinnar.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>Og hr\u00e6 \u00fe\u00edn munu ver\u00f0a \u00e6ti fyrir alla fugla himinsins og fyrir d\u00fdr jar\u00f0arinnar, og enginn mun f\u00e6la \u00feau burt.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Drottinn mun sl\u00e1 \u00feig me\u00f0 egypskum kaunum: me\u00f0 k\u00fdlum, kl\u00e1\u00f0a og \u00fatbrotum, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa skalt ver\u00f0a \u00f3l\u00e6knandi.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>Drottinn mun sl\u00e1 \u00feig me\u00f0 vitfirring, blindni og hugarsturlan.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt f\u00e1lma um h\u00e1bjartan dag, eins og blindur ma\u00f0ur f\u00e1lmar \u00ed myrkri, og \u00fe\u00fa munt enga g\u00e6fu hlj\u00f3ta \u00e1 vegum \u00fe\u00ednum, og \u00fe\u00fa munt alla daga s\u00e6ta t\u00f3mri undirokun og r\u00e1nskap, og enginn mun hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt festa \u00fe\u00e9r konu, en annar ma\u00f0ur mun leggjast me\u00f0 henni. \u00de\u00fa munt reisa h\u00fas, en eigi b\u00faa \u00ed \u00fev\u00ed. \u00de\u00fa munt planta v\u00edngar\u00f0, en engar hans nytjar hafa.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>Uxa \u00fe\u00ednum mun sl\u00e1tra\u00f0 ver\u00f0a fyrir augunum \u00e1 \u00fe\u00e9r, en \u00fe\u00fa munt ekki f\u00e1 neitt af honum a\u00f0 eta. Asna \u00fe\u00ednum mun r\u00e6nt ver\u00f0a a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e1sj\u00e1andi, en hann mun eigi hverfa aftur til \u00fe\u00edn. Sau\u00f0ir \u00fe\u00ednir munu seldir ver\u00f0a \u00ed hendur \u00f3vinum \u00fe\u00ednum, og enginn mun hj\u00e1lpa \u00fe\u00e9r.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Synir \u00fe\u00ednir og d\u00e6tur munu seldar ver\u00f0a \u00ed hendur annarri \u00fej\u00f3\u00f0, og augu \u00fe\u00edn skulu horfa \u00e1 \u00fea\u00f0 og daprast af \u00fer\u00e1 eftir \u00feeim allan daginn, en \u00fe\u00fa skalt eigi f\u00e1 a\u00f0 gj\u00f6rt.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>\u00c1v\u00f6xt lands \u00fe\u00edns og allt \u00fea\u00f0, er \u00fe\u00fa hefir afla\u00f0 \u00fe\u00e9r me\u00f0 striti \u00fe\u00ednu, mun \u00fej\u00f3\u00f0 ein eta, sem \u00fe\u00fa ekki \u00feekkir, og \u00fe\u00fa munt s\u00e6ta \u00e1\u00fej\u00e1n einni og undirokun alla daga,<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>og \u00fe\u00fa munt ver\u00f0a vitstola \u00fat af \u00fev\u00ed, er \u00fe\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 horfa upp \u00e1.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>Drottinn mun sl\u00e1 \u00feig me\u00f0 illkynju\u00f0um \u00f3l\u00e6knandi kaunum \u00e1 knj\u00e1m og f\u00f3tleggjum, fr\u00e1 iljum og allt upp \u00e1 hvirfil.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Drottinn mun lei\u00f0a \u00feig og konung \u00feinn, \u00feann er \u00fe\u00fa munt taka yfir \u00feig, til \u00feeirrar \u00fej\u00f3\u00f0ar, er hvorki \u00fe\u00fa n\u00e9 fe\u00f0ur \u00fe\u00ednir hafa \u00feekkt, og \u00fear munt \u00fe\u00fa \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, stokkum og steinum.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa munt ver\u00f0a a\u00f0 undri, or\u00f0skvi\u00f0 og spotti me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a, \u00feeirra er Drottinn lei\u00f0ir \u00feig til.<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>Miki\u00f0 korns\u00e6\u00f0i munt \u00fe\u00fa f\u00e6ra \u00fat \u00e1 akrana, en litlu skalt \u00fe\u00fa aftur inn safna, \u00fev\u00ed a\u00f0 engisprettur skulu upp eta \u00fea\u00f0.<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt planta v\u00edngar\u00f0a og yrkja \u00fe\u00e1, en v\u00edn munt \u00fe\u00fa hvorki drekka n\u00e9 leggja fyrir til geymslu, \u00fev\u00ed a\u00f0 ma\u00f0kurinn mun ey\u00f0a \u00fev\u00ed.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt hafa ol\u00edutr\u00e9 um allt land \u00feitt, en me\u00f0 ol\u00edu munt \u00fe\u00fa eigi smyrja \u00feig, \u00fev\u00ed a\u00f0 ol\u00edfur \u00fe\u00ednar munu detta af.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00de\u00fa munt geta sonu og d\u00e6tur, en ekki f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feeirra, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00feau munu fara \u00ed \u00fatleg\u00f0.<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>\u00d6ll tr\u00e9 \u00fe\u00edn og \u00e1v\u00f6xt lands \u00fe\u00edns munu engispretturnar leggja undir sig.<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>\u00datlendingurinn, sem hj\u00e1 \u00fe\u00e9r er, mun st\u00edga h\u00e6rra og h\u00e6rra upp yfir \u00feig, en \u00fe\u00fa f\u00e6rast lengra og lengra ni\u00f0ur \u00e1 vi\u00f0.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>Hann mun l\u00e1na \u00fe\u00e9r, en \u00fe\u00fa munt eigi l\u00e1na honum, hann mun ver\u00f0a h\u00f6fu\u00f0i\u00f0, en \u00fe\u00fa munt ver\u00f0a halinn.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>Allar \u00feessar b\u00f6lvanir munu koma fram \u00e1 \u00fe\u00e9r, elta \u00feig og \u00e1 \u00fe\u00e9r hr\u00edna, uns \u00fe\u00fa ert gj\u00f6reyddur, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fdddir ekki raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, a\u00f0 var\u00f0veita skipanir hans og l\u00f6g, \u00feau er hann fyrir \u00feig lag\u00f0i,<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>og \u00fe\u00e6r skulu fylgja \u00fe\u00e9r og ni\u00f0jum \u00fe\u00ednum \u00e6vinlega sem t\u00e1kn og undur.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>Fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa \u00fej\u00f3na\u00f0ir ekki Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum me\u00f0 gle\u00f0i og f\u00fasu ge\u00f0i, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa haf\u00f0ir allsn\u00e6gtir,<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa \u00fej\u00f3na \u00f3vinum \u00fe\u00ednum, \u00feeim er Drottinn sendir \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r, hungra\u00f0ur og \u00feyrstur, kl\u00e6\u00f0laus og farandi alls \u00e1 mis, og hann mun leggja j\u00e1rnok \u00e1 h\u00e1ls \u00fe\u00e9r, uns hann hefir gj\u00f6reytt \u00fe\u00e9r.<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>Drottinn mun stefna \u00ed m\u00f3ti \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3\u00f0 einni \u00far fjarl\u00e6g\u00f0, fr\u00e1 enda jar\u00f0arinnar, og kemur h\u00fan flj\u00fagandi eins og \u00f6rn, \u00fej\u00f3\u00f0, hverrar tungu \u00fe\u00fa ekki skilur,<a name=\"50\"><span class=\"versanumer\">50<\/span><\/a>ill\u00fa\u00f0legri \u00fej\u00f3\u00f0, sem eigi skeytir manngrein gamalmenna og enga v\u00e6g\u00f0 s\u00fdnir ungmennum.<a name=\"51\"><span class=\"versanumer\">51<\/span><\/a>Og h\u00fan mun eta \u00e1v\u00f6xt f\u00e9na\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xt lands \u00fe\u00edns, uns \u00fe\u00fa ert gj\u00f6reyddur. H\u00fan mun ekki leifa \u00fe\u00e9r korni, aldinlegi og ol\u00edu, vi\u00f0komu nauta \u00feinna n\u00e9 bur\u00f0i hjar\u00f0ar \u00feinnar, uns h\u00fan hefir gj\u00f6rt \u00fat af vi\u00f0 \u00feig.<a name=\"52\"><span class=\"versanumer\">52<\/span><\/a>H\u00fan mun gj\u00f6ra ums\u00e1t um \u00feig \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum, uns hinir h\u00e1u og rammgj\u00f6rvu m\u00farar \u00fe\u00ednir, sem \u00fe\u00fa treystir \u00e1, eru hrundir um land \u00feitt allt. Og h\u00fan mun gj\u00f6ra ums\u00e1t um \u00feig \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum alls sta\u00f0ar \u00ed landi \u00fe\u00ednu, \u00fev\u00ed er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r.<a name=\"53\"><span class=\"versanumer\">53<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa munt eta \u00e1v\u00f6xt kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns, holdi\u00f0 af sonum \u00fe\u00ednum og d\u00e6trum, \u00feeim er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefir gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r. Svo n\u00e6rri m\u00f6nnum mun ums\u00e1tri\u00f0 ganga og \u00fe\u00e6r h\u00f6rmungar, er \u00fe\u00fa munt s\u00e6ta af \u00f3vinum \u00fe\u00ednum.<a name=\"54\"><span class=\"versanumer\">54<\/span><\/a>Jafnvel s\u00e1 ma\u00f0ur me\u00f0al \u00fe\u00edn, sem mj\u00fakl\u00edfur er og mj\u00f6g kveifarlegur, mun \u00f3bl\u00ed\u00f0u auga l\u00edta br\u00f3\u00f0ur sinn, konuna \u00ed fa\u00f0mi s\u00ednum og \u00feau b\u00f6rnin s\u00edn, er hann enn \u00e1 eftir,<a name=\"55\"><span class=\"versanumer\">55<\/span><\/a>og eigi t\u00edma a\u00f0 gefa neinu af \u00feeim neitt af holdi barna sinna, sem hann etur, af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann hefir ekkert anna\u00f0 til. Svo n\u00e6rri m\u00f6nnum mun ums\u00e1tri\u00f0 ganga og \u00fe\u00e6r h\u00f6rmungar, er \u00fe\u00fa munt s\u00e6ta af \u00f3vinum \u00fe\u00ednum \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum.<a name=\"56\"><span class=\"versanumer\">56<\/span><\/a>Mj\u00fakl\u00edf og kveifarleg kona me\u00f0al \u00fe\u00edn, sem aldrei hefir reynt a\u00f0 tylla f\u00e6ti s\u00ednum \u00e1 j\u00f6r\u00f0ina af kveifarh\u00e6tti og tepruskap, mun \u00f3bl\u00ed\u00f0u auga l\u00edta manninn \u00ed fa\u00f0mi s\u00ednum, son sinn og d\u00f3ttur s\u00edna,<a name=\"57\"><span class=\"versanumer\">57<\/span><\/a>og fylgjuna, sem \u00fat gengur af skauti hennar, og b\u00f6rn s\u00edn, \u00feau er h\u00fan elur, \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan etur \u00feau sj\u00e1lf \u00e1 laun, \u00feegar allar bjargir eru banna\u00f0ar. Svo n\u00e6rri m\u00f6nnum mun ums\u00e1tri\u00f0 ganga og \u00fe\u00e6r h\u00f6rmungar, er \u00fe\u00fa munt s\u00e6ta af \u00f3vinum \u00fe\u00ednum \u00ed \u00f6llum borgum \u00fe\u00ednum.<a name=\"58\"><span class=\"versanumer\">58<\/span><\/a>Ef \u00fe\u00fa g\u00e6tir \u00feess eigi a\u00f0 halda \u00f6ll fyrirm\u00e6li \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls, \u00feau er ritu\u00f0 eru \u00ed \u00feessari b\u00f3k, me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f3ttast \u00feetta d\u00fdrlega og hr\u00e6\u00f0ilega nafn, DROTTINN GU\u00d0 \u00deINN,<a name=\"59\"><span class=\"versanumer\">59<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 mun Drottinn sl\u00e1 \u00feig og ni\u00f0ja \u00fe\u00edna me\u00f0 feiknapl\u00e1gum, me\u00f0 miklum pl\u00e1gum og \u00fer\u00e1l\u00e1tum, me\u00f0 illkynju\u00f0um sj\u00fakd\u00f3mum og \u00fer\u00e1l\u00e1tum,<a name=\"60\"><span class=\"versanumer\">60<\/span><\/a>og hann mun aftur l\u00e1ta yfir \u00feig koma allar hinar egypsku s\u00f3ttir, \u00fe\u00e6r er \u00fe\u00fa hr\u00e6\u00f0ist, og \u00fe\u00e6r munu vi\u00f0 \u00feig lo\u00f0a.<a name=\"61\"><span class=\"versanumer\">61<\/span><\/a>Auk \u00feess mun Drottinn l\u00e1ta yfir \u00feig koma alla \u00fe\u00e1 sj\u00fakd\u00f3ma og allar \u00fe\u00e6r pl\u00e1gur, sem ekki eru rita\u00f0ar \u00ed \u00feessari l\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3k, uns \u00fe\u00fa ert gj\u00f6reyddur.<a name=\"62\"><span class=\"versanumer\">62<\/span><\/a>A\u00f0eins f\u00e1mennur h\u00f3pur skal eftir ver\u00f0a af y\u00f0ur, \u00ed sta\u00f0 \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00e1\u00f0ur voru\u00f0 sem stj\u00f6rnur himins a\u00f0 fj\u00f6lda til, af \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00fa hl\u00fdddir eigi raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns.<a name=\"63\"><span class=\"versanumer\">63<\/span><\/a>Og eins og Drottinn \u00e1\u00f0ur fyrri haf\u00f0i yndi af \u00fev\u00ed a\u00f0 gj\u00f6ra vel vi\u00f0 y\u00f0ur og margfalda y\u00f0ur, eins mun Drottinn hafa yndi af a\u00f0 tort\u00edma y\u00f0ur og gj\u00f6rey\u00f0a, og \u00fe\u00e9r munu\u00f0 ver\u00f0a reknir burt \u00far \u00fev\u00ed landi, er \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 n\u00fa inn \u00ed til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"64\"><span class=\"versanumer\">64<\/span><\/a>Og Drottinn mun dreifa \u00fe\u00e9r me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna fr\u00e1 einu heimsskauti til annars, og \u00fear munt \u00fe\u00fa \u00fej\u00f3na \u00f6\u00f0rum gu\u00f0um, sem hvorki \u00fe\u00fa n\u00e9 fe\u00f0ur \u00fe\u00ednir hafa \u00feekkt, stokkum og steinum.<a name=\"65\"><span class=\"versanumer\">65<\/span><\/a>Og me\u00f0al \u00feessara \u00fej\u00f3\u00f0a munt \u00fe\u00fa eigi mega b\u00faa \u00ed n\u00e6\u00f0i, og hvergi mun hv\u00edldarsta\u00f0ur vera \u00e1 f\u00e6ti \u00fe\u00ednum, heldur mun Drottinn gefa \u00fe\u00e9r \u00fear skj\u00e1lfandi hjarta, \u00ferotnandi augu og r\u00e1\u00f0\u00ferota s\u00e1l.<a name=\"66\"><span class=\"versanumer\">66<\/span><\/a>L\u00edf \u00feitt mun leika fyrir \u00fe\u00e9r sem \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0i, og \u00fe\u00fa munt hr\u00e6ddur vera n\u00f3tt og dag og aldrei vera ugglaus um l\u00edf \u00feitt.<a name=\"67\"><span class=\"versanumer\">67<\/span><\/a>\u00c1 morgnana muntu segja: \u00d3, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri komi\u00f0 kveld! og \u00e1 kveldin muntu segja: \u00d3, a\u00f0 \u00fea\u00f0 v\u00e6ri kominn morgunn! s\u00f6kum hr\u00e6\u00f0slu \u00feeirrar, er gagnteki\u00f0 hefir hjarta \u00feitt, og s\u00f6kum \u00feess, er \u00fe\u00fa ver\u00f0ur a\u00f0 horfa upp \u00e1.<a name=\"68\"><span class=\"versanumer\">68<\/span><\/a>Drottinn mun flytja \u00feig aftur til Egyptalands \u00e1 skipum, \u00fe\u00e1 lei\u00f0, er \u00e9g sag\u00f0i um vi\u00f0 \u00feig: \u00de\u00fa skalt aldrei framar l\u00edta hana! Og \u00fear munu\u00f0 \u00fe\u00e9r bo\u00f0nir ver\u00f0a \u00f3vinum y\u00f0ar til kaups a\u00f0 \u00fer\u00e6lum og amb\u00e1ttum, en enginn vilja kaupa.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>28.1<\/b> Hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0i Drottins 5M\u00f3s 4.30+ &#8211; var\u00f0veita og halda 5M\u00f3s 5.1+ &#8211; fyrirm\u00e6lin 5M\u00f3s 4.2+<br \/>\n<b>28.2<\/b> Blessanir 5M\u00f3s 11.26-30; 30.15-20; 2M\u00f3s 23.20-33; 3M\u00f3s 26.3-13+<br \/>\n<b>28.3<\/b> \u00cd borginni, \u00e1 akrinum 5M\u00f3s 28.16<br \/>\n<b>28.4<\/b> \u00c1v\u00f6xtur 5M\u00f3s 7.13, 28.11,18,51; L\u00fak 1.42<br \/>\n<b>28.5<\/b> Karfa, deigtrog 5M\u00f3s 28.17<br \/>\n<b>28.6<\/b> Kemur heim, gengur \u00fat 5M\u00f3s 28.19<br \/>\n<b>28.7<\/b> Fjandmenn 5M\u00f3s 28.25<br \/>\n<b>28.8<\/b> Taka s\u00e9r fyrir hendur 5M\u00f3s 28.20<br \/>\n<b>28.9<\/b> Heil\u00f6g \u00fej\u00f3\u00f0 5M\u00f3s 7.6+<br \/>\n<b>28.10<\/b> Kennd vi\u00f0 nafn Drottins Jer 7.10, Dan 9.18-19; sbr 5M\u00f3s 7.6<br \/>\n<b>28.11<\/b> Fyrirheitna landi\u00f0 5M\u00f3s 1.8+<br \/>\n<b>28.12<\/b> Gu\u00f0 gefur regni\u00f0 5M\u00f3s 11.14+ ; 28.23-24 \u2013 l\u00e1na 5M\u00f3s 28.44<br \/>\n<b>28.13<\/b> Aldrei ver\u00f0a undir 5M\u00f3s 28.43 \u2013 var\u00f0veita og halda 5M\u00f3s 5.1+<br \/>\n<b>28.14<\/b> V\u00edkja ekki 5M\u00f3s 5.32+ &#8211; a\u00f0rir gu\u00f0ir 2M\u00f3s 20.3+<br \/>\n<b>28.15<\/b> Hl\u00fd\u00f0a Drottni 5M\u00f3s 4.30+ &#8211; var\u00f0veita og halda 5M\u00f3s 5.1+ &#8211; bo\u00f0 og l\u00f6g 5M\u00f3s 4.2+ &#8211; hl\u00fd\u00f0a ekki Drottni 5M\u00f3s 8.20+ &#8211; b\u00f6lvanir 5M\u00f3s 11.26-30; 30.19; 3M\u00f3s 26.14-38+<br \/>\n<b>28.16<\/b> \u00cd borginni, \u00e1 akrinum 5M\u00f3s 28.3<br \/>\n<b>28.17<\/b> Karfa, deigtrog 5M\u00f3s 28.5<br \/>\n<b>28.18<\/b> \u00c1v\u00f6xtur 5M\u00f3s 28.4+<br \/>\n<b>28.19<\/b> Kemur heim, gengur \u00fat 5M\u00f3s 28.6<br \/>\n<b>28.20<\/b> Taka s\u00e9r fyrir hendur 5M\u00f3s 28.8 \u2013 afm\u00e1\u00f0ur skyndilega 5M\u00f3s 11.17 \u2013 sv\u00edkja Drottin<br \/>\n<b>Jes<\/b> 1.4; Jer 2.13<br \/>\n<b>28.21<\/b> Taka land til eignar 5M\u00f3s 1.21+<br \/>\n<b>28.22<\/b> Korndrep og gulnan Am 4.9<br \/>\n<b>28.23<\/b> Eir, j\u00e1rn, sbr 3M\u00f3s 26.19<br \/>\n<b>28.24<\/b> Gu\u00f0 gefur regni\u00f0 5M\u00f3s 11.14+ ; 28.12<br \/>\n<b>28.25<\/b> Fjandmenn 5M\u00f3s 28.7<br \/>\n<b>28.26<\/b> \u00c6ti fyrir fugla og d\u00fdr Jer 7.33; 16.4<br \/>\n<b>28.27<\/b> Kaun 5M\u00f3s 28.5; 2M\u00f3s 9.8+<br \/>\n<b>28.28<\/b> Vitfirring, blindni Sak 12.4<br \/>\n<b>28.29<\/b> K\u00fagun 5M\u00f3s 28.33<br \/>\n<b>28.30<\/b> H\u00fas, v\u00edngar\u00f0ur Am 5.11<br \/>\n<b>28.32<\/b> Augun daprast 5M\u00f3s 28.65; 3M\u00f3s 26.16<br \/>\n<b>28.35<\/b> Kaun 5M\u00f3s 28.27+<br \/>\n<b>28.36<\/b> \u00datleg\u00f0 sbr 5M\u00f3s 4.27-28; 28.64 \u2013 a\u00f0rir gu\u00f0ir 2M\u00f3s 20.3+ &#8211; \u00f3\u00feekktir gu\u00f0ir 5M\u00f3s 4.28; 28.64; 29.25<br \/>\n<b>28.37<\/b> Vekja hroll sbr 5M\u00f3s 28.25 \u2013 spott 2M\u00f3s 32.25+<br \/>\n<b>28.38<\/b> Uppskera ekki M\u00edk 6.15; Hag 1.6 \u2013 engisprettur Jl 1.4<br \/>\n<b>28.39<\/b> V\u00edngar\u00f0ur Am 5.11<br \/>\n<b>28.43<\/b> St\u00edgur h\u00e6rra, ni\u00f0url\u00e6gist meira 5M\u00f3s 28.13<br \/>\n<b>28.44<\/b> L\u00e1na 5M\u00f3s 28.12<br \/>\n<b>28.45<\/b> Hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0i Drottins 5M\u00f3s 4.30+<br \/>\n<b>28.46<\/b> T\u00e1kn og st\u00f3rmerki 5M\u00f3s 4.34+<br \/>\n<b>28.48<\/b> Fara alls \u00e1 mis 5M\u00f3s 28.57 \u2013 j\u00e1rnok Jer 28.14<br \/>\n<b>28.49<\/b> Stefna gegn \u00fe\u00e9r Jer 5.15-17<br \/>\n<b>28.51<\/b> \u00c1v\u00f6xtur 5M\u00f3s 28.4+ &#8211; gj\u00f6rey\u00f0a 5M\u00f3s 8.19<br \/>\n<b>28.53<\/b> Eta b\u00f6rn s\u00edn 3M\u00f3s 26.29+<br \/>\n<b>28.57<\/b> Fara alls \u00e1 mis 5M\u00f3s 28.48<br \/>\n<b>28.58<\/b> Lotning (\u00f3ttast) 5M\u00f3s 4.10+ &#8211; g\u00e6ta \u00feess a\u00f0 halda 5M\u00f3s 5.1+ &#8211; \u00f6ll \u00e1kv\u00e6\u00f0i \u00feessa l\u00f6gm\u00e1ls 5M\u00f3s 27.3+<br \/>\n<b>28.60<\/b> S\u00f3ttir 5M\u00f3s 7.15; 2M\u00f3s 7.8-11.9<br \/>\n<b>28.61<\/b> L\u00f6gm\u00e1lsb\u00f3kin 5M\u00f3s 29.20; 30.10; 31.26; J\u00f3s 1.8; 8.34; 2Kon 22.8,11; Neh 8.3<br \/>\n<b>28.62<\/b> F\u00e1mennur h\u00f3pur 5M\u00f3s 4.27+ &#8211; sem stj\u00f6rnur himins 5M\u00f3s 1.10+ &#8211; hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0i Dottins 5M\u00f3s 4.30+<br \/>\n<b>28.63<\/b> Land til eignar 5M\u00f3s 1.21+<br \/>\n<b>28.64<\/b> \u00cdsrael dreift 5M\u00f3s 4.27-28; 28.36; S\u00edr 48.15<br \/>\n<b>28.65<\/b> D\u00f6pur augu 5M\u00f3s 28.32<br \/>\n<b>28.67<\/b> \u00d6rv\u00e6nting Job 24.22<br \/>\n<b>28.68<\/b> Aftur til Egyptalands 5M\u00f3s 17.16+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir grandg\u00e6filega raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa var\u00f0veitir og heldur allar skipanir hans, \u00fe\u00e6r er \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, \u00fe\u00e1 mun Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefja \u00feig yfir allar \u00fej\u00f3\u00f0ir \u00e1 j\u00f6r\u00f0u,2og \u00fe\u00e1 munu fram vi\u00f0 \u00feig koma og \u00e1 \u00fe\u00e9r r\u00e6tast allar \u00feessar blessanir, ef \u00fe\u00fa hl\u00fd\u00f0ir raustu Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns:3Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00ed borginni og blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa \u00e1 akrinum.4Blessa\u00f0ur er \u00e1v\u00f6xtur kvi\u00f0ar \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur lands \u00fe\u00edns og \u00e1v\u00f6xtur f\u00e9na\u00f0ar \u00fe\u00edns, vi\u00f0koma nautgripa \u00feinna og bur\u00f0ir hjar\u00f0ar \u00feinnar.5Blessu\u00f0 er karfa \u00fe\u00edn og deigtrog \u00feitt.6Blessa\u00f0ur ert \u00fe\u00fa, \u00feegar \u00fe\u00fa gengur inn, og blessa\u00f0ur <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-28-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1527","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1527","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1527"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1527\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1527"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}