{"id":1525,"date":"2017-11-18T20:17:37","date_gmt":"2017-11-18T20:17:37","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-26-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:51:15","modified_gmt":"2021-06-06T10:51:15","slug":"fimmta-mosebok-26-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-26-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 26. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00fa ert kominn inn \u00ed landi\u00f0, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til eignar, og \u00fe\u00fa hefir teki\u00f0 \u00fea\u00f0 til eignar og ert setstur a\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed,<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa taka nokku\u00f0 af frumgr\u00f3\u00f0a alls \u00e1vaxtar landsins, er \u00fe\u00fa f\u00e6r af landi \u00fe\u00ednu, \u00fev\u00ed er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r, l\u00e1ta \u00fea\u00f0 \u00ed k\u00f6rfu og fara me\u00f0 \u00fea\u00f0 til \u00feess sta\u00f0ar, er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn velur til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta nafn sitt b\u00faa \u00fear.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00fa skalt fara til prestsins, sem \u00fe\u00e1 er, og segja vi\u00f0 hann: \u00c9g j\u00e1ta \u00ed dag fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, a\u00f0 \u00e9g er kominn inn \u00ed landi\u00f0, sem Drottinn s\u00f3r fe\u00f0rum vorum a\u00f0 gefa oss.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Og presturinn skal taka k\u00f6rfuna af hendi \u00fe\u00e9r og setja hana ni\u00f0ur fyrir framan altari Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>\u00de\u00e1 skalt \u00fe\u00fa taka til m\u00e1ls og segja frammi fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum: Fa\u00f0ir minn var umreikandi Aramei, og hann f\u00f3r su\u00f0ur til Egyptalands f\u00e1li\u00f0a\u00f0ur og dvaldist \u00fear sem \u00fatlendingur og var\u00f0 \u00fear a\u00f0 mikilli, sterkri og fj\u00f6lmennri \u00fej\u00f3\u00f0.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>En Egyptar f\u00f3ru illa me\u00f0 oss og \u00fej\u00e1\u00f0u oss og l\u00f6g\u00f0u \u00e1 oss \u00feunga \u00fer\u00e6lavinnu.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00de\u00e1 hr\u00f3pu\u00f0um v\u00e9r til Drottins, Gu\u00f0s fe\u00f0ra vorra, og Drottinn heyr\u00f0i raust vora og s\u00e1 eymd vora, \u00feraut og \u00e1nau\u00f0.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og Drottinn flutti oss af Egyptalandi me\u00f0 sterkri hendi og \u00fatr\u00e9ttum armlegg, me\u00f0 mikilli skelfingu og me\u00f0 t\u00e1knum og undrum.<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>Og hann leiddi oss hinga\u00f0 og gaf oss \u00feetta land, land, sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Og n\u00fa f\u00e6ri \u00e9g h\u00e9r frumgr\u00f3\u00f0ann af \u00e1vexti landsins, \u00feess er \u00fe\u00fa, Drottinn, hefir gefi\u00f0 m\u00e9r. \u00dev\u00ed n\u00e6st skalt \u00fe\u00fa setja \u00fea\u00f0 ni\u00f0ur frammi fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum og falla fram fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>Og \u00fe\u00fa skalt gle\u00f0jast yfir \u00f6llum \u00feeim g\u00e6\u00f0um, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefir gefi\u00f0 \u00fe\u00e9r, \u00fe\u00fa og skylduli\u00f0 \u00feitt, og lev\u00edtinn og \u00fatlendingurinn, sem hj\u00e1 \u00fe\u00e9r eru.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00fa hefir greitt alla t\u00edund af afrakstri \u00fe\u00ednum \u00feri\u00f0ja \u00e1ri\u00f0, t\u00edundar\u00e1ri\u00f0, og hefir fengi\u00f0 hana \u00ed hendur lev\u00edtanum, \u00fatlendingnum, muna\u00f0arleysingjanum og ekkjunni, svo a\u00f0 \u00feau megi eta hana innan borgarhli\u00f0a \u00feinna og ver\u00f0a mett,<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa segja frammi fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum: \u00c9g hefi flutt hi\u00f0 heilaga burt \u00far h\u00fasinu og fengi\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed hendur lev\u00edtanum, \u00fatlendingnum, muna\u00f0arleysingjanum og ekkjunni og fari\u00f0 \u00feannig n\u00e1kv\u00e6mlega eftir bo\u00f0or\u00f0i \u00fe\u00ednu, \u00fev\u00ed er \u00fe\u00fa hefir fyrir mig lagt. \u00c9g hefi eigi breytt \u00fat af neinu bo\u00f0or\u00f0a \u00feinna n\u00e9 gleymt nokkru \u00feeirra.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00c9g hefi eigi eti\u00f0 neitt af \u00fev\u00ed \u00ed sorg minni, eigi flutt neitt af \u00fev\u00ed burt, er \u00e9g var \u00f3hreinn, og eigi gefi\u00f0 dau\u00f0um manni neitt af \u00fev\u00ed. \u00c9g hefi hl\u00fdtt raustu Drottins Gu\u00f0s m\u00edns og gj\u00f6rt allt eins og \u00fe\u00fa hefir fyrir mig lagt.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>L\u00edt ni\u00f0ur fr\u00e1 \u00fe\u00ednum heilaga b\u00fasta\u00f0, fr\u00e1 himnum, og blessa \u00fe\u00fa l\u00fd\u00f0 \u00feinn \u00cdsrael og landi\u00f0, sem \u00fe\u00fa hefir gefi\u00f0 oss, eins og \u00fe\u00fa s\u00f3rst fe\u00f0rum vorum, land sem fl\u00fdtur \u00ed mj\u00f3lk og hunangi.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>\u00cd dag b\u00fd\u00f0ur Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn \u00fe\u00e9r a\u00f0 halda \u00feessi l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i. \u00de\u00fa skalt \u00fev\u00ed var\u00f0veita \u00feau og halda \u00feau af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu og af allri s\u00e1lu \u00feinni.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00de\u00fa hefir l\u00e1ti\u00f0 Drottin l\u00fdsa yfir \u00fev\u00ed \u00ed dag, a\u00f0 hann vilji vera \u00feinn Gu\u00f0 og a\u00f0 \u00fe\u00e9r skulu\u00f0 ganga \u00e1 hans vegum og var\u00f0veita l\u00f6g hans, skipanir og \u00e1kv\u00e6\u00f0i og hl\u00fd\u00f0a hans raustu.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og Drottinn hefir l\u00e1ti\u00f0 \u00feig l\u00fdsa yfir \u00fev\u00ed \u00ed dag, a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir vera hans eignarl\u00fd\u00f0ur, eins og hann hefir bo\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e9r, og a\u00f0 \u00fe\u00fa viljir var\u00f0veita allar skipanir hans,<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>svo a\u00f0 hann geti hafi\u00f0 \u00feig yfir allar \u00fej\u00f3\u00f0ir, er hann hefir skapa\u00f0, til lofs, fr\u00e6g\u00f0ar og hei\u00f0urs, og \u00fe\u00fa s\u00e9rt Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum helga\u00f0ur l\u00fd\u00f0ur, eins og hann hefir sagt.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>26.1<\/b> Landi\u00f0 gefi\u00f0 til eignar 5M\u00f3s 3.20+<br \/>\n<b>26.2<\/b> Frumgr\u00f3\u00f0i 5M\u00f3s 18.4; 26.10+ &#8211; Gu\u00f0 velur 5M\u00f3s 12.5+<br \/>\n<b>26.3<\/b> Fyrirheitna landi\u00f0 5M\u00f3s 1.8+<br \/>\n<b>26.5<\/b> Egyptaland sbr 5M\u00f3s 10.19+ &#8211; fj\u00f6lmenn \u00fej\u00f3\u00f0 2M\u00f3s 1.7+<br \/>\n<b>26.6<\/b> Ill me\u00f0fer\u00f0 2M\u00f3s 1.11-14; 4M\u00f3s 20.15<br \/>\n<b>26.7<\/b> Gu\u00f0 fe\u00f0ranna 5M\u00f3s 1.11+ &#8211; vi\u00f0 hr\u00f3pu\u00f0um 2M\u00f3s 2.23+<br \/>\n<b>26.8<\/b> Sterk h\u00f6nd 5M\u00f3s 4.34+ &#8211; t\u00e1kn og st\u00f3rmerki 5M\u00f3s 4.34+<br \/>\n<b>26.10<\/b> Frumgr\u00f3\u00f0inn 2M\u00f3s 23.19; 34.26; 3M\u00f3s 23.10; S\u00edr 35.10<br \/>\n<b>26.11<\/b> Gle\u00f0jast 5M\u00f3s 12.7+<br \/>\n<b>26.12<\/b> T\u00edund 5M\u00f3s 14.22+ &#8211; Lev\u00edti 5M\u00f3s 10.18+<br \/>\n<b>26.13<\/b> Ekki gleyma Drottni 5M\u00f3s 4.9+<br \/>\n<b>26.14<\/b> Hl\u00fd\u00f0a Drottni 5M\u00f3s 4.30+<br \/>\n<b>26.15<\/b> L\u00edta ni\u00f0ur af himni Slm 102.20 \u2013 fyrirheitna landi\u00f0 5M\u00f3s 1.8+<br \/>\n<b>26.16<\/b> Var\u00f0veita og halda 5M\u00f3s 5.1+ &#8211; af allri s\u00e1lu \u00feinni 5M\u00f3s 4.29+<br \/>\n<b>26.17<\/b> Hl\u00fd\u00f0a fyrirm\u00e6lum Drottins 5M\u00f3s 4.30+<br \/>\n<b>26.18<\/b> Eignarl\u00fd\u00f0ur Gu\u00f0s 5M\u00f3s 7.6+<br \/>\n<b>26.19<\/b> Helgu\u00f0 \u00fej\u00f3\u00f0 5M\u00f3s 7.6+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1\u00deegar \u00fe\u00fa ert kominn inn \u00ed landi\u00f0, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til eignar, og \u00fe\u00fa hefir teki\u00f0 \u00fea\u00f0 til eignar og ert setstur a\u00f0 \u00ed \u00fev\u00ed,2\u00fe\u00e1 skalt \u00fe\u00fa taka nokku\u00f0 af frumgr\u00f3\u00f0a alls \u00e1vaxtar landsins, er \u00fe\u00fa f\u00e6r af landi \u00fe\u00ednu, \u00fev\u00ed er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r, l\u00e1ta \u00fea\u00f0 \u00ed k\u00f6rfu og fara me\u00f0 \u00fea\u00f0 til \u00feess sta\u00f0ar, er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn velur til \u00feess a\u00f0 l\u00e1ta nafn sitt b\u00faa \u00fear.3\u00de\u00fa skalt fara til prestsins, sem \u00fe\u00e1 er, og segja vi\u00f0 hann: \u00c9g j\u00e1ta \u00ed dag fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum, a\u00f0 \u00e9g er kominn inn \u00ed landi\u00f0, <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-26-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1525","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1525","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1525"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1525\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1525"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}