{"id":1503,"date":"2017-11-18T20:17:32","date_gmt":"2017-11-18T20:17:32","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-4-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T10:51:20","modified_gmt":"2021-06-06T10:51:20","slug":"fimmta-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"Fimmta M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Heyr \u00fe\u00fa n\u00fa, \u00cdsrael, l\u00f6g \u00feau og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, sem \u00e9g kenni y\u00f0ur, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 \u00feau, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa og komast inn \u00ed \u00fea\u00f0 land, sem Drottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra y\u00f0ar, gefur y\u00f0ur, og f\u00e1 \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>\u00de\u00e9r skulu\u00f0 engu auka vi\u00f0 \u00feau bo\u00f0or\u00f0, sem \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur, n\u00e9 heldur draga nokku\u00f0 fr\u00e1, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r var\u00f0veiti\u00f0 skipanir Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ar, sem \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>\u00de\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum, hva\u00f0 Drottinn gj\u00f6r\u00f0i sakir Baal Pe\u00f3r, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6llum \u00feeim m\u00f6nnum, sem fylgdu Baal Pe\u00f3r, eyddi Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn \u00far samf\u00e9lagi y\u00f0ar.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>En \u00fe\u00e9r, sem h\u00e9ldu\u00f0 y\u00f0ur fast vi\u00f0 Drottin Gu\u00f0 y\u00f0ar, lifi\u00f0 allir fram \u00e1 \u00feennan dag.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Sj\u00e1, \u00e9g hefi kennt y\u00f0ur l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, eins og Drottinn Gu\u00f0 minn lag\u00f0i fyrir mig, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r breyti\u00f0 eftir \u00feeim \u00ed \u00fev\u00ed landi, sem \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 n\u00fa inn \u00ed til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Var\u00f0veiti\u00f0 \u00feau \u00fev\u00ed og haldi\u00f0 \u00feau, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fea\u00f0 mun koma \u00e1 y\u00f0ur or\u00f0i hj\u00e1 \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um fyrir visku og skynsemi. \u00deegar \u00fe\u00e6r heyra \u00f6ll \u00feessi l\u00f6g, munu \u00fe\u00e6r segja: \u00dea\u00f0 er vissulega viturt og skynsamt f\u00f3lk, \u00feessi mikla \u00fej\u00f3\u00f0.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 hva\u00f0a st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0 er til, sem hafi gu\u00f0, er henni s\u00e9 eins n\u00e1l\u00e6gur eins og Drottinn Gu\u00f0 vor er oss, hven\u00e6r sem v\u00e9r \u00e1k\u00f6llum hann?<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>Og hver er s\u00fa st\u00f3r\u00fej\u00f3\u00f0, er hafi svo r\u00e9ttl\u00e1t l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, eins og allt \u00feetta l\u00f6gm\u00e1l er, sem \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur \u00ed dag?<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>En vara \u00feig og g\u00e6t vandlega s\u00e1lar \u00feinnar, a\u00f0 eigi gleymir \u00fe\u00fa \u00feeim hlutum, sem \u00fe\u00fa hefir s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum, og a\u00f0 \u00fea\u00f0 ekki l\u00ed\u00f0i \u00fe\u00e9r \u00far minni alla \u00e6vidaga \u00fe\u00edna, og \u00fe\u00fa skalt gj\u00f6ra \u00fe\u00e1 kunna b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum og barnab\u00f6rnum.<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>Gleym \u00fe\u00fa eigi deginum, \u00feegar \u00fe\u00fa st\u00f3\u00f0st frammi fyrir Drottni Gu\u00f0i \u00fe\u00ednum hj\u00e1 H\u00f3reb, og Drottinn sag\u00f0i vi\u00f0 mig: Safna \u00fe\u00fa l\u00fd\u00f0num saman fyrir mig. \u00c9g \u00e6tla a\u00f0 l\u00e1ta \u00fe\u00e1 heyra or\u00f0 m\u00edn, svo a\u00f0 \u00feeir l\u00e6ri a\u00f0 \u00f3ttast mig alla \u00fe\u00e1 daga, sem \u00feeir lifa \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, og kenni \u00fea\u00f0 einnig b\u00f6rnum s\u00ednum.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>\u00de\u00e9r komu\u00f0 \u00fe\u00e1 fram og n\u00e1mu\u00f0 sta\u00f0ar undir fjallinu, en fjalli\u00f0 loga\u00f0i allt \u00ed eldi upp \u00ed h\u00e1an himin. Fylgdi \u00fev\u00ed myrkur, sk\u00fd og sorti.<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>Og Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur \u00fat \u00far eldinum. Hlj\u00f3m or\u00f0anna heyr\u00f0u\u00f0 \u00fe\u00e9r, en mynd s\u00e1u\u00f0 \u00fe\u00e9r enga, \u00fe\u00e9r heyr\u00f0u\u00f0 a\u00f0eins hlj\u00f3minn.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>\u00de\u00e1 birti hann y\u00f0ur s\u00e1ttm\u00e1la sinn, sem hann bau\u00f0 y\u00f0ur a\u00f0 halda, t\u00edu bo\u00f0or\u00f0in, og hann reit \u00feau \u00e1 tv\u00e6r steint\u00f6flur.<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00de\u00e1 bau\u00f0 Drottinn m\u00e9r a\u00f0 kenna y\u00f0ur l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r g\u00e6tu\u00f0 breytt eftir \u00feeim \u00ed \u00fev\u00ed landi, er \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 n\u00fa yfir til, til \u00feess a\u00f0 taka \u00fea\u00f0 til eignar.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>G\u00e6ti\u00f0 y\u00f0ar \u00fev\u00ed vandlega, l\u00edf y\u00f0ar liggur vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00fe\u00e9r s\u00e1u\u00f0 enga mynd \u00e1 \u00feeim degi, \u00feegar Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur hj\u00e1 H\u00f3reb \u00fat \u00far eldinum,<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>a\u00f0 \u00fe\u00e9r ekki mannspilli\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faa y\u00f0ur til skur\u00f0go\u00f0 \u00ed mynd einhvers l\u00edkneskis, hvort heldur er \u00ed l\u00edki karls e\u00f0a konu,<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>\u00ed l\u00edki einhvers ferf\u00e6tlings, sem til er \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, \u00ed l\u00edki einhvers fleygs fugls, er fl\u00fdgur \u00ed loftinu,<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>\u00ed l\u00edki einhvers d\u00fdrs, sem skr\u00ed\u00f0ur \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, e\u00f0a \u00ed l\u00edki einhvers fisks, sem til er \u00ed v\u00f6tnunum undir j\u00f6r\u00f0inni,<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>og a\u00f0 \u00fe\u00fa eigi, \u00feegar \u00fe\u00fa lyftir augum \u00fe\u00ednum til himins og s\u00e9r s\u00f3lina, tungli\u00f0 og stj\u00f6rnurnar, allan himinsins her, l\u00e1tir t\u00e6last til \u00feess a\u00f0 falla fram fyrir \u00feeim og d\u00fdrka \u00feau. \u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefir skipt \u00feeim me\u00f0al allra \u00fej\u00f3\u00f0a undir himninum.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>Y\u00f0ur hefir Drottinn teki\u00f0 a\u00f0 s\u00e9r og leitt y\u00f0ur \u00fat \u00far j\u00e1rnbr\u00e6\u00f0sluofninum, \u00fat \u00far Egyptalandi, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r skyldu\u00f0 ver\u00f0a eignar\u00fej\u00f3\u00f0 hans, sem og hefir veri\u00f0 til \u00feessa.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Drottinn reiddist m\u00e9r y\u00f0ar vegna, svo a\u00f0 hann s\u00f3r, a\u00f0 \u00e9g skyldi ekki komast yfir J\u00f3rdan og ekki komast inn \u00ed g\u00f3\u00f0a landi\u00f0, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r til eignar,<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>heldur hl\u00fdt \u00e9g a\u00f0 deyja \u00ed \u00feessu landi og f\u00e6 ekki a\u00f0 komast yfir J\u00f3rdan. En \u00fe\u00e9r munu\u00f0 komast yfir um og f\u00e1 \u00feetta g\u00f3\u00f0a land til eignar.<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>G\u00e6ti\u00f0 y\u00f0ar, a\u00f0 \u00fe\u00e9r gleymi\u00f0 ekki s\u00e1ttm\u00e1lanum, er Drottinn Gu\u00f0 y\u00f0ar hefir vi\u00f0 y\u00f0ur gj\u00f6rt, og b\u00fai\u00f0 y\u00f0ur ekki til skur\u00f0go\u00f0 \u00ed mynd einhvers \u00feess, er Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn hefir banna\u00f0 \u00fe\u00e9r.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn er ey\u00f0andi eldur, vandl\u00e1tur Gu\u00f0.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00e9r hafi\u00f0 geti\u00f0 b\u00f6rn og barnab\u00f6rn, og hafi\u00f0 \u00edlengst \u00ed landinu, ef \u00fe\u00e9r \u00fe\u00e1 mannspilli\u00f0 y\u00f0ur \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 b\u00faa til skur\u00f0go\u00f0 \u00ed einhverri mynd og gj\u00f6ri\u00f0 \u00fea\u00f0, sem illt er \u00ed augum Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ar, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r egni\u00f0 hann til rei\u00f0i,<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 kve\u00f0 \u00e9g \u00ed dag b\u00e6\u00f0i himin og j\u00f6r\u00f0 til vitnis m\u00f3ti y\u00f0ur, a\u00f0 \u00fe\u00e1 munu\u00f0 \u00fe\u00e9r br\u00e1tt ey\u00f0ast \u00far \u00fev\u00ed landi, er \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 n\u00fa inn \u00ed yfir J\u00f3rdan til \u00feess a\u00f0 f\u00e1 \u00fea\u00f0 til eignar. \u00de\u00e9r munu\u00f0 \u00fe\u00e1 eigi lifa \u00fear m\u00f6rg \u00e1rin, heldur ver\u00f0a gj\u00f6reyddir.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Og Drottinn mun \u00fe\u00e1 dreifa y\u00f0ur me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna, svo a\u00f0 af y\u00f0ur skal einungis eftir ver\u00f0a l\u00edtill h\u00f3pur me\u00f0al hei\u00f0ingja \u00feeirra, er Drottinn lei\u00f0ir y\u00f0ur burt til.<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>\u00dear munu\u00f0 \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3na \u00feeim gu\u00f0um, sem eru handaverk manna, stokkar og steinar, sem eigi sj\u00e1 og eigi heyra og eigi eta og eigi finna lykt.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>\u00dear munt \u00fe\u00fa leita Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns, og \u00fe\u00fa munt finna hann, ef \u00fe\u00fa leitar hans af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu og af allri s\u00e1lu \u00feinni.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>\u00deegar \u00fe\u00fa ert \u00ed nau\u00f0um staddur og allt \u00feetta kemur yfir \u00feig, \u00fe\u00e1 munt \u00fe\u00fa, \u00e1 komandi t\u00edmum, sn\u00faa \u00fe\u00e9r til Drottins Gu\u00f0s \u00fe\u00edns og hl\u00fd\u00f0a hans r\u00f6ddu.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>\u00dev\u00ed a\u00f0 Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn er miskunnsamur Gu\u00f0. Hann mun eigi yfirgefa \u00feig n\u00e9 afm\u00e1 \u00feig, og hann mun eigi gleyma s\u00e1ttm\u00e1lanum, er hann s\u00f3r fe\u00f0rum \u00fe\u00ednum.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Spyr \u00feig fyrir um fyrri t\u00edma, sem veri\u00f0 hafa \u00e1 undan \u00fe\u00e9r, allt fr\u00e1 \u00feeim t\u00edma, er Gu\u00f0 sk\u00f3p mennina \u00e1 j\u00f6r\u00f0inni, og fr\u00e1 einu heimsskauti til annars, hvort nokkurn t\u00edma hafi or\u00f0i\u00f0 svo miklir hlutir e\u00f0a nokku\u00f0 sl\u00edkt heyrst,<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>hvort nokkur \u00fej\u00f3\u00f0 hafi heyrt raust Gu\u00f0s \u00fat \u00far eldinum, eins og \u00fe\u00fa hefir heyrt, og \u00fe\u00f3 haldi\u00f0 l\u00edfi.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>E\u00f0a hvort Gu\u00f0 hefir til reynt nokkurn t\u00edma a\u00f0 koma sj\u00e1lfur til \u00feess a\u00f0 n\u00e1 \u00fej\u00f3\u00f0 af annarri \u00fej\u00f3\u00f0 me\u00f0 m\u00e1ttarverkum, t\u00e1knum og undrum, me\u00f0 styrj\u00f6ld, sterkri hendi, \u00fatr\u00e9ttum armlegg og miklum skelfingum, eins og Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gj\u00f6r\u00f0i vi\u00f0 y\u00f0ur \u00ed Egyptalandi \u00ed augs\u00fdn \u00feinni.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>\u00deetta hefir \u00fe\u00fa fengi\u00f0 a\u00f0 sj\u00e1, svo a\u00f0 \u00fe\u00fa m\u00e6ttir vita, a\u00f0 Drottinn, hann er Gu\u00f0, og enginn nema hann einn.<a name=\"36\"><span class=\"versanumer\">36<\/span><\/a>Af himni hefir hann l\u00e1ti\u00f0 \u00feig heyra s\u00edna raust til \u00feess a\u00f0 kenna \u00fe\u00e9r, og \u00e1 j\u00f6r\u00f0u hefir hann l\u00e1ti\u00f0 \u00feig sj\u00e1 hinn mikla eld sinn, og \u00fe\u00fa hefir heyrt or\u00f0 hans \u00fat \u00far eldinum.<a name=\"37\"><span class=\"versanumer\">37<\/span><\/a>Og fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 hann elska\u00f0i fe\u00f0ur \u00fe\u00edna og \u00fatvaldi ni\u00f0ja \u00feeirra eftir \u00fe\u00e1 og leiddi \u00feig sj\u00e1lfur af Egyptalandi me\u00f0 hinum mikla m\u00e6tti s\u00ednum<a name=\"38\"><span class=\"versanumer\">38<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 st\u00f6kkva burt undan \u00fe\u00e9r \u00fej\u00f3\u00f0um, sem eru st\u00e6rri og sterkari en \u00fe\u00fa ert, en lei\u00f0a \u00feig \u00feanga\u00f0 og gefa \u00fe\u00e9r land \u00feeirra til eignar, eins og n\u00fa er fram komi\u00f0,<a name=\"39\"><span class=\"versanumer\">39<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 ber \u00fe\u00e9r \u00ed dag a\u00f0 kannast vi\u00f0 \u00fea\u00f0 og hugfesta \u00fea\u00f0, a\u00f0 Drottinn, hann er Gu\u00f0 \u00e1 himnum uppi og \u00e1 j\u00f6r\u00f0u ni\u00f0ri og enginn annar.<a name=\"40\"><span class=\"versanumer\">40<\/span><\/a>\u00de\u00fa skalt var\u00f0veita bo\u00f0 hans og skipanir, sem \u00e9g legg fyrir \u00feig \u00ed dag, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r vegni vel og b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum eftir \u00feig, og til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00fa alla daga megir dvelja langa \u00e6vi \u00ed landinu, sem Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn gefur \u00fe\u00e9r.<a name=\"41\"><span class=\"versanumer\">41<\/span><\/a>\u00de\u00e1 skildi M\u00f3se fr\u00e1 \u00ferj\u00e1r borgir hinumegin J\u00f3rdanar, austanmegin,<a name=\"42\"><span class=\"versanumer\">42<\/span><\/a>til \u00feess a\u00f0 \u00feanga\u00f0 m\u00e6tti fl\u00fdja hver s\u00e1 vegandi, er \u00f3viljandi hef\u00f0i vegi\u00f0 n\u00e1unga sinn og eigi veri\u00f0 \u00f3vinur hans \u00e1\u00f0ur a\u00f0 hann m\u00e6tti fl\u00fdja \u00ed einhverja af borgum \u00feessum og halda l\u00edfi:<a name=\"43\"><span class=\"versanumer\">43<\/span><\/a>Beser \u00ed ey\u00f0im\u00f6rkinni \u00e1 sl\u00e9ttlendinu handa R\u00faben\u00edtum, Ram\u00f3t \u00ed G\u00edlea\u00f0 handa Ga\u00f0\u00edtum og G\u00f3lan \u00ed Basan handa Manass\u00edtum.<a name=\"44\"><span class=\"versanumer\">44<\/span><\/a>\u00deetta er l\u00f6gm\u00e1li\u00f0, sem M\u00f3se lag\u00f0i fyrir \u00cdsraelsmenn.<a name=\"45\"><span class=\"versanumer\">45<\/span><\/a>\u00deetta eru fyrirm\u00e6li \u00feau, l\u00f6g og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, sem M\u00f3se birti \u00cdsraelsm\u00f6nnum, \u00fe\u00e1 er \u00feeir f\u00f3ru af Egyptalandi,<a name=\"46\"><span class=\"versanumer\">46<\/span><\/a>hinumegin J\u00f3rdanar, \u00ed dalnum gegnt Bet Pe\u00f3r \u00ed landi S\u00edhons Amor\u00edtakonungs, sem haf\u00f0i a\u00f0setur \u00ed Hesbon og M\u00f3se og \u00cdsraelsmenn felldu, er \u00feeir f\u00f3ru af Egyptalandi.<a name=\"47\"><span class=\"versanumer\">47<\/span><\/a>\u00deeir l\u00f6g\u00f0u undir sig land hans, svo og land \u00d3gs, konungs \u00ed Basan, land Amor\u00edtakonunganna beggja, hinumegin J\u00f3rdanar, austanmegin,<a name=\"48\"><span class=\"versanumer\">48<\/span><\/a>fr\u00e1 Ar\u00f3er, sem liggur \u00e1 bakka Arnon\u00e1r, allt til S\u00ed\u00f3n, \u00fea\u00f0 er Hermon,<a name=\"49\"><span class=\"versanumer\">49<\/span><\/a>og allt sl\u00e9ttlendi\u00f0 hinumegin J\u00f3rdanar, austanmegin, allt a\u00f0 vatninu \u00e1 sl\u00e9ttlendinu undir Pisgahl\u00ed\u00f0um.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>4.1<\/b> Hl\u00fd\u00f0 \u00e1  \u00cdsrael 5M\u00f3s 5.1; 6.4; 9.1; 20.3; 27.9 \u2013 halda bo\u00f0or\u00f0in og lifa 5M\u00f3s 5.33; 6.24; 8.1; 16.20; 30.16,19-20; 3M\u00f3s 18.5+ ; Am 5.14 \u2013 landi\u00f0 5M\u00f3s 3.20 + &#8211; Gu\u00f0 fe\u00f0ranna 5M\u00f3s 1.11+<br \/>\n<b>4.2<\/b> Engu b\u00e6ta vi\u00f0 5M\u00f3s 13.1; Pr\u00e9d 3.14; Opb 22.18-19; sbr 5M\u00f3s 5.22 \u2013 \u00e9g set ykkur 5M\u00f3s 6.2; 12.11,14,28; 13.1<br \/>\n<b>4.4<\/b> Enn \u00ed dag 5M\u00f3s 4.40; 6.6; 7.11; 8.11; 10.13; 11.13,27; 13.19; 27.4,10; 28.1,13; 30.2,8,11,16; 2M\u00f3s 34.11; J\u00f3s 22.5; sbr 5M\u00f3s 5.31+<br \/>\n<b>4.5<\/b> Landi\u00f0 til eignar 5M\u00f3s 1.21+<br \/>\n<b>4.6<\/b> Viska og skilningur Slm 19.8; Job 28.28; Okv 9.10; S\u00edr 1.14-20 \u2013 halda og fylgja 5M\u00f3s 5.1+<br \/>\n<b>4.7<\/b> Drottinn er me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0ar sinnar 5M\u00f3s 6.15; 7.21; sbr 31.17 \u2013 n\u00e1l\u00e6gur Gu\u00f0 5M\u00f3s 4.32-34; Slm 145.18; 148.14<br \/>\n<b>4.8<\/b> L\u00f6g Slm 147.19-20<br \/>\n<b>4.9<\/b> Ekki gleyma Drottni 5M\u00f3s 4.23; 6.12; 8.11,19; 26.13; 32.18 \u2013 segja b\u00f6rnum \u00fe\u00ednum 2M\u00f3s 10.2+<br \/>\n<b>4.10<\/b> H\u00f3reb 2M\u00f3s 19.16-20 \u2013 frammi fyrir Drottni 5M\u00f3s 29.10-13; 31.12; J\u00f3s 24.1 \u2013 \u00f3ttast Drottinn 5M\u00f3s 5.29; 6.2,13,24; 8.6; 10.12,20; 13.4; 14.23; 17.19; 28.58; 31.12; Okv 1.7+ ; S\u00edr 1.11+<br \/>\n<b>4.11<\/b> Sorti 5M\u00f3s 5.22; 2M\u00f3s 20.21; Heb 12.18<br \/>\n<b>4.12<\/b> Gu\u00f0 \u00e1varpa\u00f0i 5M\u00f3s 4.36; 5.22-27; 2M\u00f3s 19.16,9; Heb 12.19<br \/>\n<b>4.13<\/b> Steint\u00f6flur 5M\u00f3s 5.22; 9.9-17; 2M\u00f3s 24.12+<br \/>\n<b>4.14<\/b> Landi\u00f0 5M\u00f3s 1.21+<br \/>\n<b>4.16<\/b> Ekki skur\u00f0go\u00f0 5M\u00f3s 4.23; 5.8; 2M\u00f3s 20.4+ &#8211; \u00ed mynd R\u00f3m 1.23<br \/>\n<b>4.19<\/b> D\u00fdrka s\u00f3lina, tungli\u00f0 &#8230; 5M\u00f3s 17.3; 2Kon 17.16; 23.4-5; Jer 8.2; Esk 8.16; Job31.26-28; SSal 13.2<br \/>\n<b>4.20<\/b> Eignar\u00fej\u00f3\u00f0 Drottins 5M\u00f3s 7.6; 14.2 \u2013 j\u00e1rnbr\u00e6\u00f0sluofn 1Kon 8.51; Jer 11.4<br \/>\n<b>4.21<\/b> Drottinn rei\u00f0ist M\u00f3se 5M\u00f3s 1.37+ &#8211; gott land 5M\u00f3s 1.25+ &#8211; landi\u00f0 gefi\u00f0 5M\u00f3s 3.20+<br \/>\n<b>4.22<\/b> Dau\u00f0i M\u00f3se 5M\u00f3s 34 \u2013 taka landi\u00f0 5M\u00f3s 1.21+<br \/>\n<b>4.23<\/b> Ekki gleyma 5M\u00f3s 4.9+<br \/>\n<b>4.24<\/b> Gu\u00f0 er ey\u00f0andi eldur 5M\u00f3s 9.3; Jes 33.14; Heb 12.29; sbr 2M\u00f3s 24.17; Jes 30.27 \u2013 afbr\u00fd\u00f0isamur Gu\u00f0 2M\u00f3s 20.5+<br \/>\n<b>4.25<\/b> Illt \u00ed augum Drottins 5M\u00f3s 9.18; 17.2; 31.29; 4M\u00f3s 32.13; D\u00f3m 2.11; 3.7,12; 4.1; 6.1; 10.6; 13.1; 1Sam 15.19; 1Kon 11.6; Jes 65.12; Jer 7.30; 32.30 \u2013 vekja heift Drottins 5M\u00f3s 9.18; 31.29; 32.16-21<br \/>\n<b>4.26<\/b> Vitni 5M\u00f3s 30.19; 31.28; 32.1; Jes 1.2 \u2013 b\u00f6lvun 5M\u00f3s 28.15-68 \u2013 tort\u00edmast 5M\u00f3s 8.19,20; 30.18; J\u00f3s 23.16 \u2013 b\u00faa (lifa \u00ed landinu) 5M\u00f3s 4.40; 5.16,33; 11.9; 30.18; 2M\u00f3s 20.12; 1Kon 3.14; Jes 53.10; Okv 3.2+<br \/>\n<b>4.27<\/b> Dreifa me\u00f0al \u00fej\u00f3\u00f0anna 3M\u00f3s 26.33+ ; 2Kon 17.6 \u2013 \u00f6rf\u00e1ir 5M\u00f3s 28.62; Jes 10.20-22; 11.11; 28.5<br \/>\n<b>4.28<\/b> Skur\u00f0go\u00f0 5M\u00f3s 28.36,64; 29.17; 2Kon 19.18; Jes 44.9-20; Slm 115.4-8<br \/>\n<b>4.29<\/b> Leita Drottins Jes 45.19; 51.1; Jer 50.4; H\u00f3s 3.5; 5.15; Slm 9.11+ &#8211; af \u00f6llu hjarta \u00fe\u00ednu 5M\u00f3s 9.5; 10.12; 26.16; 30.2-3; J\u00f3s 22.5; 23.14; 1Kon 2.4; 2Kon 23.3,25<br \/>\n<b>4.30<\/b> Sn\u00faa s\u00e9r til Drottins 5M\u00f3s 30.1-5; Jer 3.22; 4.1; H\u00f3s 6.1; 14.2; sbr 3M\u00f3s 26.40-45; 2Kro 15.2-4; Jer 29.12-15 \u2013 hl\u00fd\u00f0a bo\u00f0um Gu\u00f0s 5M\u00f3s 8.20; 9.23; 13.5,19; 27.10; 28.1-2,15; 30.20; 1M\u00f3s 22.18; 2M\u00f3s 19.5; J\u00f3s 24.24<br \/>\n<b>4.31<\/b> Miskunnsamur Gu\u00f0s 5M\u00f3s 13.18; 30.3; 2M\u00f3s 33.19; Slm 103.8<br \/>\n<b>4.32<\/b> Gu\u00f0 skapa\u00f0i mennina 1M\u00f3s 1.26-27; 2.7-8,18-23; S\u00edr 17.1<br \/>\n<b>4.34<\/b> T\u00e1kn og undur 5M\u00f3s 6.22; 7.19; 26.8; 29.2; 2M\u00f3s 7.3; Slm 78.43; 105.27; Post 2.43+ &#8211; sterk h\u00f6nd 5M\u00f3s 5.15; 7.19; 11.2; 26.8;sbr 3.24+<br \/>\n<b>4.36<\/b> Gu\u00f0 hefir tala\u00f0 5M\u00f3s 4.12+<br \/>\n<b>4.37<\/b> Gu\u00f0 elskar 5M\u00f3s 7.8,13; 10.15; 23.5; 33.3; 1Kon 10.9; Jer 31.3<br \/>\n<b>4.38<\/b> Ruddi \u00far vegi 5M\u00f3s 9.4; 11.23; 2M\u00f3s 34.24; 4M\u00f3s 32.21; J\u00f3s 3.10; 13.6; D\u00f3m 2.21; 11.23; Slm 44.3<br \/>\n<b>4.40<\/b> Sem \u00e9g set \u00fe\u00e9r 5M\u00f3s 4.2+ &#8211; lifir lengi 5M\u00f3s 4.26+ &#8211; a\u00f0 \u00fe\u00e9r vegni vel 5M\u00f3s 5.16,29,33; 6.3,18,24; 10.13; 12.25; 19.13; 22.7<br \/>\n<b>4.42<\/b> Gri\u00f0asta\u00f0ur 5M\u00f3s 19.1-13, 2M\u00f3s 21.13; 4M\u00f3s 35.9-34; J\u00f3s 20<br \/>\n<b>4.45<\/b> L\u00f6gin 5M\u00f3s 1.1-5; 5.1; 12.1<br \/>\n<b>4.46<\/b> S\u00edhon og \u00d3g 5M\u00f3s 1.4+<br \/>\n<b>4.49<\/b> Pisga 5M\u00f3s 3.17+<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Heyr \u00fe\u00fa n\u00fa, \u00cdsrael, l\u00f6g \u00feau og \u00e1kv\u00e6\u00f0i, sem \u00e9g kenni y\u00f0ur, til \u00feess a\u00f0 \u00fe\u00e9r haldi\u00f0 \u00feau, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r megi\u00f0 lifa og komast inn \u00ed \u00fea\u00f0 land, sem Drottinn, Gu\u00f0 fe\u00f0ra y\u00f0ar, gefur y\u00f0ur, og f\u00e1 \u00fea\u00f0 til eignar.2\u00de\u00e9r skulu\u00f0 engu auka vi\u00f0 \u00feau bo\u00f0or\u00f0, sem \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur, n\u00e9 heldur draga nokku\u00f0 fr\u00e1, svo a\u00f0 \u00fe\u00e9r var\u00f0veiti\u00f0 skipanir Drottins Gu\u00f0s y\u00f0ar, sem \u00e9g legg fyrir y\u00f0ur.3\u00de\u00e9r hafi\u00f0 s\u00e9\u00f0 me\u00f0 eigin augum, hva\u00f0 Drottinn gj\u00f6r\u00f0i sakir Baal Pe\u00f3r, \u00fev\u00ed a\u00f0 \u00f6llum \u00feeim m\u00f6nnum, sem fylgdu Baal Pe\u00f3r, eyddi Drottinn Gu\u00f0 \u00feinn \u00far samf\u00e9lagi y\u00f0ar.4En \u00fe\u00e9r, sem h\u00e9ldu\u00f0 <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/fimmta-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1503","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1503","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1503"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1503\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1503"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}