{"id":1440,"date":"2017-11-18T20:17:20","date_gmt":"2017-11-18T20:17:20","guid":{"rendered":"http:\/\/biblian.is\/1981\/thridja-mosebok-4-kafli\/"},"modified":"2021-06-06T11:11:21","modified_gmt":"2021-06-06T11:11:21","slug":"thridja-mosebok-4-kafli","status":"publish","type":"page","link":"https:\/\/biblian.is\/1981\/thridja-mosebok-4-kafli\/","title":{"rendered":"\u00deri\u00f0ja M\u00f3seb\u00f3k 4. kafli"},"content":{"rendered":"<p><a name=\"1\"><span class=\"versanumer\">1<\/span><\/a>Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:<a name=\"2\"><span class=\"versanumer\">2<\/span><\/a>Tala \u00fe\u00fa til \u00cdsraelsmanna og seg: N\u00fa syndgar einhver af vang\u00e1 \u00ed einhverju \u00fev\u00ed, sem Drottinn hefir banna\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra, og gj\u00f6rir eitthva\u00f0 af \u00fev\u00ed.<a name=\"3\"><span class=\"versanumer\">3<\/span><\/a>Ef smur\u00f0i presturinn syndgar og bakar f\u00f3lkinu sekt, \u00fe\u00e1 skal hann fyrir synd s\u00edna, er hann hefir dr\u00fdgt, f\u00e6ra Drottni ungneyti gallalaust til syndaf\u00f3rnar.<a name=\"4\"><span class=\"versanumer\">4<\/span><\/a>Skal hann lei\u00f0a uxann a\u00f0 dyrum samfundatjaldsins fram fyrir Drottin og leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 uxans og sl\u00e1tra uxanum frammi fyrir Drottni.<a name=\"5\"><span class=\"versanumer\">5<\/span><\/a>Skal smur\u00f0i presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i uxans og bera \u00fea\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0.<a name=\"6\"><span class=\"versanumer\">6<\/span><\/a>Skal presturinn drepa fingri s\u00ednum \u00ed bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og st\u00f6kkva sj\u00f6 sinnum nokkru af bl\u00f3\u00f0inu frammi fyrir Drottni, fyrir framan fortjald helgid\u00f3msins.<a name=\"7\"><span class=\"versanumer\">7<\/span><\/a>\u00dev\u00ed n\u00e6st skal presturinn r\u00ed\u00f0a nokkru af bl\u00f3\u00f0inu \u00e1 horn ilmreykelsisaltarisins, er stendur \u00ed samfundatjaldinu frammi fyrir Drottni, en \u00f6llu hinu bl\u00f3\u00f0i uxans skal hella ni\u00f0ur vi\u00f0 brennif\u00f3rnaraltari\u00f0, er stendur vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins.<a name=\"8\"><span class=\"versanumer\">8<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an skal hann taka allan m\u00f6rinn \u00far syndaf\u00f3rnaruxanum, netjuna, er hylur i\u00f0rin, og allan inn\u00fdflam\u00f6rinn,<a name=\"9\"><span class=\"versanumer\">9<\/span><\/a>&#8222;b\u00e6\u00f0i n\u00fdrun og n\u00fdrnam\u00f6rinn, sem er innan \u00e1 m\u00f6lunum, og st\u00e6rra lifrarbla\u00f0i\u00f0; vi\u00f0 n\u00fdrun skal hann taka \u00fea\u00f0 fr\u00e1,&#8220;<a name=\"10\"><span class=\"versanumer\">10<\/span><\/a>eins og hann er tekinn \u00far heillaf\u00f3rnarnautinu, og skal presturinn brenna \u00feetta \u00e1 brennif\u00f3rnaraltarinu.<a name=\"11\"><span class=\"versanumer\">11<\/span><\/a>En h\u00fa\u00f0 uxans og allt kj\u00f6ti\u00f0, \u00e1samt h\u00f6f\u00f0inu og f\u00f3tunum, inn\u00fdflunum og gorinu,<a name=\"12\"><span class=\"versanumer\">12<\/span><\/a>allan uxann skal hann f\u00e6ra \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar \u00e1 hreinan sta\u00f0, \u00feanga\u00f0 sem \u00f6skunni er hellt \u00fat, leggja hann \u00e1 vi\u00f0 og brenna \u00ed eldi. \u00dear sem \u00f6skunni er hellt \u00fat skal hann brenndur.<a name=\"13\"><span class=\"versanumer\">13<\/span><\/a>Ef allur \u00cdsraels l\u00fd\u00f0ur misgj\u00f6rir af vang\u00e1 og \u00fea\u00f0 er s\u00f6fnu\u00f0inum huli\u00f0 og \u00feeir gj\u00f6ra eitthva\u00f0, sem Drottinn hefir banna\u00f0, og falla \u00ed sekt,<a name=\"14\"><span class=\"versanumer\">14<\/span><\/a>\u00fe\u00e1 skal s\u00f6fnu\u00f0urinn, \u00feegar syndin, sem \u00feeir hafa dr\u00fdgt, er vitanleg or\u00f0in, f\u00e6ra ungneyti til syndaf\u00f3rnar og lei\u00f0a \u00fea\u00f0 fram fyrir samfundatjaldi\u00f0.<a name=\"15\"><span class=\"versanumer\">15<\/span><\/a>Og skulu \u00f6ldungar safna\u00f0arins leggja hendur s\u00ednar \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 uxans frammi fyrir Drottni og sl\u00e1tra uxanum frammi fyrir Drottni.<a name=\"16\"><span class=\"versanumer\">16<\/span><\/a>Og smur\u00f0i presturinn skal bera nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i uxans inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0.<a name=\"17\"><span class=\"versanumer\">17<\/span><\/a>Og skal presturinn drepa fingri s\u00ednum \u00ed bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og st\u00f6kkva \u00fev\u00ed sj\u00f6 sinnum frammi fyrir Drottni, fyrir framan fortjaldi\u00f0.<a name=\"18\"><span class=\"versanumer\">18<\/span><\/a>Og nokkru af bl\u00f3\u00f0inu skal hann r\u00ed\u00f0a \u00e1 horn altarisins, sem er frammi fyrir Drottni, inni \u00ed samfundatjaldinu, en \u00f6llu hinu bl\u00f3\u00f0inu skal hann hella ni\u00f0ur vi\u00f0 brennif\u00f3rnaraltari\u00f0, sem er vi\u00f0 dyr samfundatjaldsins.<a name=\"19\"><span class=\"versanumer\">19<\/span><\/a>Og hann skal taka allan m\u00f6rinn \u00far honum og brenna \u00e1 altarinu.<a name=\"20\"><span class=\"versanumer\">20<\/span><\/a>\u00deannig skal hann fara me\u00f0 uxann. Eins og hann f\u00f3r me\u00f0 syndaf\u00f3rnaruxann, svo skal hann me\u00f0 hann fara. \u00deannig skal presturinn fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir \u00fe\u00e1, og \u00feeim mun fyrirgefi\u00f0 ver\u00f0a.<a name=\"21\"><span class=\"versanumer\">21<\/span><\/a>Skal hann s\u00ed\u00f0an f\u00e6ra uxann \u00fat fyrir herb\u00fa\u00f0irnar og brenna hann, eins og hann brenndi hinn fyrri uxann. Er \u00fea\u00f0 syndaf\u00f3rn safna\u00f0arins.<a name=\"22\"><span class=\"versanumer\">22<\/span><\/a>\u00deegar lei\u00f0togi syndgar og gj\u00f6rir af vang\u00e1 eitthva\u00f0, sem Drottinn Gu\u00f0 hans hefir banna\u00f0, og ver\u00f0ur fyrir \u00fea\u00f0 sekur,<a name=\"23\"><span class=\"versanumer\">23<\/span><\/a>og honum er gj\u00f6r\u00f0 vitanleg synd s\u00fa, er hann hefir dr\u00fdgt, \u00fe\u00e1 skal hann f\u00e6ra a\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6f geithafur gallalausan.<a name=\"24\"><span class=\"versanumer\">24<\/span><\/a>Skal hann leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 hafursins og sl\u00e1tra honum \u00fear sem brennif\u00f3rnunum er sl\u00e1tra\u00f0, frammi fyrir Drottni. \u00dea\u00f0 er syndaf\u00f3rn.<a name=\"25\"><span class=\"versanumer\">25<\/span><\/a>Skal presturinn \u00fe\u00e1 taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i syndaf\u00f3rnarinnar me\u00f0 fingri s\u00ednum og r\u00ed\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins, en hinu bl\u00f3\u00f0inu skal hann hella ni\u00f0ur vi\u00f0 brennif\u00f3rnaraltari\u00f0.<a name=\"26\"><span class=\"versanumer\">26<\/span><\/a>En allan m\u00f6rinn \u00far honum skal hann brenna \u00e1 altarinu, eins og m\u00f6rinn \u00far heillaf\u00f3rninni. \u00deannig skal presturinn fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann vegna syndar hans, og honum mun fyrirgefi\u00f0 ver\u00f0a.<a name=\"27\"><span class=\"versanumer\">27<\/span><\/a>Ef einhver al\u00fe\u00fd\u00f0uma\u00f0ur syndgar af vang\u00e1 me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 gj\u00f6ra eitthva\u00f0 \u00fea\u00f0, sem Drottinn hefir banna\u00f0, og ver\u00f0ur sekur,<a name=\"28\"><span class=\"versanumer\">28<\/span><\/a>og honum er gj\u00f6r\u00f0 vitanleg synd s\u00fa, sem hann hefir dr\u00fdgt, \u00fe\u00e1 skal hann f\u00e6ra a\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6f geit gallalausa, fyrir synd \u00fe\u00e1, sem hann hefir dr\u00fdgt.<a name=\"29\"><span class=\"versanumer\">29<\/span><\/a>Skal hann leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 syndaf\u00f3rnarinnar og sl\u00e1tra syndaf\u00f3rninni \u00fear sem brennif\u00f3rnum er sl\u00e1tra\u00f0.<a name=\"30\"><span class=\"versanumer\">30<\/span><\/a>S\u00ed\u00f0an skal presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0inu me\u00f0 fingri s\u00ednum og r\u00ed\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins, en \u00f6llu hinu bl\u00f3\u00f0inu skal hann hella ni\u00f0ur vi\u00f0 altari\u00f0.<a name=\"31\"><span class=\"versanumer\">31<\/span><\/a>En allan m\u00f6rinn skal hann taka fr\u00e1, eins og m\u00f6rinn \u00far heillaf\u00f3rninni var tekinn fr\u00e1, og skal presturinn brenna hann \u00e1 altarinu til \u00fe\u00e6gilegs ilms fyrir Drottin. \u00deannig skal presturinn fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann, og honum mun fyrirgefi\u00f0 ver\u00f0a.<a name=\"32\"><span class=\"versanumer\">32<\/span><\/a>Fram beri hann sau\u00f0kind a\u00f0 f\u00f3rnargj\u00f6f til syndaf\u00f3rnar, \u00fe\u00e1 skal \u00fea\u00f0, er hann fram ber, vera \u00e1sau\u00f0ur gallalaus.<a name=\"33\"><span class=\"versanumer\">33<\/span><\/a>Skal hann leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 syndaf\u00f3rnarinnar og sl\u00e1tra henni til syndaf\u00f3rnar \u00fear sem brennif\u00f3rnum er sl\u00e1tra\u00f0.<a name=\"34\"><span class=\"versanumer\">34<\/span><\/a>Skal \u00fe\u00e1 presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i syndaf\u00f3rnarinnar me\u00f0 fingri s\u00ednum og r\u00ed\u00f0a \u00fev\u00ed \u00e1 horn brennif\u00f3rnaraltarisins, en \u00f6llu hinu bl\u00f3\u00f0inu skal hann hella ni\u00f0ur vi\u00f0 altari\u00f0.<a name=\"35\"><span class=\"versanumer\">35<\/span><\/a>En allan m\u00f6rinn skal hann taka fr\u00e1, eins og sau\u00f0am\u00f6rinn er tekinn \u00far heillaf\u00f3rninni, og skal presturinn brenna hann \u00e1 altarinu ofan \u00e1 eldf\u00f3rnum Drottins. \u00deannig skal presturinn fri\u00f0\u00fe\u00e6gja fyrir hann vegna syndar \u00feeirrar, er hann hefir dr\u00fdgt, og mun honum fyrirgefi\u00f0 ver\u00f0a.<\/p>\n<div class=\"footnote1981\"><b>4.1<\/b> Syndaf\u00f3rnir 3M\u00f3s 6.17-22; 16; 4M\u00f3s 15.22-29<br \/>\n<b>4.3<\/b> Prestur smur\u00f0ur 3M\u00f3s 8.12; 16.32; S\u00edr 45.15<br \/>\n<b>4.6<\/b> Fortjald helgid\u00f3msins 2M\u00f3s 26.31-35; Matt 27.51<br \/>\n<b>4.7<\/b> Reykelsisaltari 2M\u00f3s 30.1-10<br \/>\n<b>4.12<\/b> \u00dat fyrir herb\u00fai\u00f0irnar Heb 13.11-13<br \/>\n<b>4.20<\/b> Fri\u00f0\u00fe\u00e6gja 3M\u00f3s 8.34; 9.7; 16; 17.11; 2Kro 29.24; Esk 45.15,17<\/div>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>1Drottinn tala\u00f0i vi\u00f0 M\u00f3se og sag\u00f0i:2Tala \u00fe\u00fa til \u00cdsraelsmanna og seg: N\u00fa syndgar einhver af vang\u00e1 \u00ed einhverju \u00fev\u00ed, sem Drottinn hefir banna\u00f0 a\u00f0 gj\u00f6ra, og gj\u00f6rir eitthva\u00f0 af \u00fev\u00ed.3Ef smur\u00f0i presturinn syndgar og bakar f\u00f3lkinu sekt, \u00fe\u00e1 skal hann fyrir synd s\u00edna, er hann hefir dr\u00fdgt, f\u00e6ra Drottni ungneyti gallalaust til syndaf\u00f3rnar.4Skal hann lei\u00f0a uxann a\u00f0 dyrum samfundatjaldsins fram fyrir Drottin og leggja h\u00f6nd s\u00edna \u00e1 h\u00f6fu\u00f0 uxans og sl\u00e1tra uxanum frammi fyrir Drottni.5Skal smur\u00f0i presturinn taka nokku\u00f0 af bl\u00f3\u00f0i uxans og bera \u00fea\u00f0 inn \u00ed samfundatjaldi\u00f0.6Skal presturinn drepa fingri s\u00ednum \u00ed bl\u00f3\u00f0i\u00f0 og st\u00f6kkva sj\u00f6 sinnum nokkru af <a href=\"https:\/\/biblian.is\/1981\/thridja-mosebok-4-kafli\/\"> [&#8230;]<\/a><\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"parent":0,"menu_order":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","template":"bibliukaflar.php","meta":{"footnotes":""},"class_list":["post-1440","page","type-page","status-publish","hentry"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1440","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages"}],"about":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/types\/page"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1440"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/pages\/1440\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/biblian.is\/1981\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1440"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}