Enn af verkum Salómons

1 Þegar þau tuttugu ár voru liðin sem það tók Salómon að reisa musteri Drottins og eigið hús 2 víggirti hann borgirnar sem Húram hafði afhent Salómon og lét Ísraelsmenn setjast þar að.
3 Því næst fór Salómon til Hama Sóba og tók hana. 4 Hann víggirti einnig Tadmor í eyðimörkinni og allar birgðaborgirnar sem hann hafði reist í Hamat. 5 Hann víggirti einnig Efra og Neðra Bethóron og gerði þessar borgir að virkjum með múrum, hliðum og slagbröndum. 6 Salómon víggirti einnig Baalat og allar birgðaborgirnar sem hann átti og allar borgirnar fyrir hervagna sína, hesta og allt sem hann vildi reisa í Jerúsalem, í Líbanon og hvarvetna í ríki sínu.
7 Salómon lagði kvaðavinnu á alla sem eftir voru af Hetítum, Amorítum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum og ekki voru Ísraelsmenn. 8 Það voru niðjar þeirra sem enn voru eftir í landinu og Ísraelsmenn höfðu ekki eytt. Á þá lagði Salómon kvaðavinnu sem þeir hafa unnið til þessa dags. 9 En Salómon gerði enga Ísraelsmenn að þrælum til að vinna fyrir sig. Þeir voru hermenn hans, embættismenn, hershöfðingjar og höfuðsmenn, vagnstjórar og foringjar yfir hervögnum hans og hervagnaliðum. 10 Tvö hundruð og fimmtíu verkstjórar undir stjórn landstjóra Salómons konungs stjórnuðu verkamönnunum.
11 Salómon lét dóttur faraós fara úr borg Davíðs í húsið sem hann hafði reist handa henni því að hann sagði: „Engin kona á að búa í húsi Davíðs, konungs Ísraels, því að það er heilagt þar sem örk Drottins hefur komið í það.“
12 Á þeim tíma færði Salómon Drottni brennifórn á altari Drottins sem hann hafði látið reisa fyrir framan forsalinn. 13 Hann færði fórnirnar eins og við átti hverju sinni, á hvíldardögum og við nýtt tungl, samkvæmt skipun Móse. Þetta gerði hann einnig á hátíðunum sem haldnar eru þrisvar á ári, hátíð hinna ósýrðu brauða, viknahátíðinni og laufskálahátíðinni.
14 Í samræmi við ákvörðun Davíðs, föður síns, setti hann þjónustuflokka prestanna til þjónustu og Levítana til starfa að flytja lofgjörð og þjóna ásamt prestunum eftir því sem þurfti hvern dag. 15 Eins setti hann hliðverðina við hvert hlið samkvæmt þjónustuflokkum þeirra því að þannig hafði guðsmaðurinn Davíð mælt fyrir. 16 Ekki var vikið í neinu frá fyrirmælum konungs um prestana og Levítana né heldur um fjárhirsluna.
17 Þar með var öllu verki Salómons lokið sem unnið hafði verið að, frá því að grunnur húss Drottins var lagður. Hús Drottins var fullgert.
18 Þá hélt Salómon til Esjón Geber og Elat á strönd hafsins í Edómslandi. 19 Húram sendi honum skip og reynda sjómenn ásamt öðrum mönnum úr þjónustu sinni. Þeir komu með mönnum Salómons til Ófír, fluttu þaðan fjögur hundruð og fimmtíu talentur gulls og færðu Salómon konungi.