23 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér gjaldið tíund af myntu, anís og kúmeni en hirðið ekki um það sem mikilvægast er í lögmálinu, réttlæti, miskunn og trúfesti. Þetta ber að gera og hitt eigi ógert að láta. 24 Blindu leiðtogar, þér síið mýfluguna en svelgið úlfaldann!
25 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hreinsið bikarinn og diskinn utan en innan eru þeir fullir yfirgangs og óhófs. 26 Blindi farísei, hreinsaðu fyrst bikarinn innan svo að hann verði líka hreinn að utan.
27 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér líkist hvítum kölkuðum gröfum sem sýnast fagrar utan en innan eru þær fullar af dauðra manna beinum og alls kyns óþverra. 28 Þannig eruð þér. Þér sýnist góðir fyrir sjónum manna en eruð að innan fullir hræsni og ranglætis.
29 Vei yður, fræðimenn og farísear, hræsnarar! Þér hlaðið upp grafir spámannanna og skreytið leiði réttlátra 30 og segið: Ef vér hefðum lifað á dögum feðra vorra hefðum vér ekki átt hlut með þeim í lífláti spámannanna. 31 Þannig vitnið þér það sjálfir að þér eruð afkomendur þeirra sem myrtu spámennina. 32 Nú skuluð þér fylla mæli feðra yðar. 33 Höggormar og nöðrukyn, hvernig fáið þér umflúið helvítisdóm? 34 Þess vegna sendi ég til yðar spámenn, spekinga og fræðimenn. Suma þeirra munuð þér lífláta og krossfesta, aðra húðstrýkja í samkundum yðar og ofsækja borg úr borg. 35 Þannig kemur yfir yður allt saklaust blóð sem úthellt hefur verið á jörðinni, frá blóði Abels hins réttláta til blóðs Sakaría Barakíasonar sem þér drápuð milli musterisins og altarisins. 36Sannlega segi ég yður: Allt mun þetta lenda á þessari kynslóð.

Þér vilduð eigi

37 Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi? 38 Guð mun yfirgefa musteri yðar og það verður lagt í rúst. 39 Ég segi yður: Héðan af munuð þér eigi sjá mig fyrr en þér segið: Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“