11 Ég gaf þeim lög mín og boðaði þeim reglur mínar. Hver sá maður, sem framfylgir þeim, lifir vegna þeirra. 12 Ég gaf þeim einnig hvíldardaga mína sem tákn um sáttmálann milli mín og þeirra svo að þeir skildu að ég, Drottinn, helga þá. 13 En Ísraelsmenn risu gegn mér í eyðimörkinni. Þeir fóru ekki að lögum mínum og höfnuðu reglum mínum þótt hver sá sem hlýðir þeim lifi vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína stórum.
Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá þarna í eyðimörkinni og tortíma þeim. 14 Vegna nafns míns greip ég til annars ráðs til þess að það vanhelgaðist ekki í augum þjóðanna þar sem ég hafði leitt Ísrael út fyrir augum þeirra. 15 Þá hóf ég upp hönd mína og sór þeim, þarna í eyðimörkinni, að fara ekki með þá til landsins sem ég hafði heitið að gefa þeim, landsins sem flýtur í mjólk og hunangi og af öllum löndum ber. 16 Þetta gerði ég af því að þeir höfðu hafnað reglum mínum og ekki fylgt lögum mínum og vanhelgað hvíldardaga mína því að hugur þeirra var bundinn skurðgoðum.
17 En ég leit til þeirra miskunnarauga og ég eyddi þeim ekki og ég gerði ekki út af við þá í eyðimörkinni. 18 Ég sagði því við syni þeirra í eyðimörkinni: Fylgið ekki lögum feðra ykkar og haldið ekki reglur þeirra og saurgið ykkur ekki á skurðgoðum þeirra. 19 Ég er Drottinn Guð ykkar. Farið að lögum mínum og haldið reglur mínar og framfylgið þeim. 20 Haldið hvíldardaga mína heilaga svo að þeir verði tákn sáttmálans milli mín og ykkar og þið skiljið að ég er Drottinn Guð ykkar.
21 En synirnir risu upp gegn mér. Þeir fylgdu ekki lögum mínum og héldu ekki reglur mínar með því að framfylgja þeim, en hver sá sem hlýðir þeim lifir vegna þeirra. Þeir vanhelguðu hvíldardaga mína. Þá hugðist ég úthella reiði minni yfir þá og svala heift minni á þeim, þarna í eyðimörkinni. 22 En ég hélt aftur af mér vegna nafns míns og til þess að það yrði ekki vanhelgað í augum þjóðanna þar sem ég hafði leitt þá út fyrir augum þeirra.
23 Þá hóf ég upp hönd mína og sór þeim, þarna í eyðimörkinni, að tvístra þeim innan um framandi þjóðir og dreifa þeim um löndin 24 vegna þess að þeir höfðu ekki framfylgt reglum mínum, hafnað lögum mínum og vanhelgað hvíldardaga mína og augu þeirra mændu á eftir skurðgoðum feðra þeirra.
25 Þá gaf ég þeim einnig lög sem ekki voru góð og reglur sem ekki veittu þeim líf. 26 Ég saurgaði þá með fórnargjöfum þeirra þegar þeir sendu allt sem opnar móðurlíf gegnum eld. Ég ætlaði að ofbjóða þeim svo að þeir skildu að ég er Drottinn.
27 Ávarpaðu þá Ísraelsmenn, mannssonur, og segðu við þá: Svo segir Drottinn Guð: Feður ykkar smánuðu mig einnig með því að þeir sviku mig. 28 Þegar ég hafði flutt þá til landsins, sem ég sór með upplyftri hendi að gefa þeim, slátruðu þeir sláturfórnum sínum þar um leið og þeir sáu háan hól eða laufgað tré. Þar færðu þeir fram gjafir sínar sem vöktu reiði mína, létu þekkan ilm stíga þar upp og dreyptu þar dreypifórnum sínum. 29 Þá sagði ég við þá: „Til hvaða fórnarhæðar haldið þið?“ Þess vegna er slíkur staður nefndur fórnarhæð allt til þessa dags.
30 Segðu því við Ísraelsmenn: Svo segir Drottinn Guð: Ætlið þið að saurga ykkur á sama hátt og feður ykkar og hórast með viðurstyggilegum skurðgoðum þeirra? 31 Þegar þið berið fram fórnargjafir ykkar með því að láta syni ykkar ganga gegnum eld saurgið þið ykkur. Og allt fram á þennan dag saurgið þið ykkur á öllum skurðgoðum ykkar. Ætti ég þá að leyfa ykkur að leita svara hjá mér, Ísraelsmenn? Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn Guð, leyfi ég ykkur ekki að leita svara hjá mér. 32 Aldrei skal það verða sem kom ykkur í hug þegar þið sögðuð: Við viljum vera eins og aðrar þjóðir, eins og þjóðflokkarnir í öðrum löndum sem tilbiðja stokka og steina.