5 Sé einhver réttlátur iðkar hann rétt og réttlæti. 6 Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum og hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns og leggst ekki með konu sem hefur á klæðum, 7 hann beitir engan ofríki, skilar skuldunauti veði sínu, hann fremur ekki rán, hann gefur hungruðum mat sinn, hann skýlir nöktum með klæðum, 8 hann lánar ekki gegn vöxtum, stundar ekki okur, hann heldur hendi sinni frá illum verkum, hann fellir óvilhallan úrskurð í deilum manna, 9 hann fer að lögum mínum og breytir í öllu eftir reglum mínum og fylgir þeim. Hann er réttlátur. Þess vegna mun hann lifa, segir Drottinn Guð.
10 Eignist þessi maður ofbeldishneigðan son sem úthellir blóði og fremur eitthvað af því 11 sem faðir hans lét ógert, heldur fórnarmáltíð á fjöllum og svívirðir eiginkonu náunga síns, 12 beitir fátæka og hjálparvana ofríki, fremur rán, skilar skuldunauti ekki veði sínu, hefur augu sín upp til skurðgoða, fremur viðurstyggilegt athæfi, 13 veitir lán gegn vöxtum og stundar okur, á hann að halda lífi? Nei, hann á ekki að halda lífi. Þar sem hann hefur framið alla þessa svívirðu skal hann deyja. Blóð hans skal koma yfir höfuð hans.
14 Nú eignast þessi maður einnig son sem sér allar þær syndir sem faðir hans drýgði, sér þær en drýgir þær ekki. 15 Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum, hann hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns, 16 hann beitir engan ofríki, hann krefst ekki veðs, hann fremur ekki rán, hann gefur hungruðum mat sinn, hann skýlir nöktum með klæðum. 17 Hann heldur hendi sinni frá illum verkum, tekur hvorki vexti né stundar okur, framfylgir reglum mínum og fer að lögum mínum, þessi maður á ekki að deyja vegna sektar föður síns, hann á að halda lífi. 18 En faðir hans, sem beitti menn þvingun, rændi og vann illvirki meðal skyldmenna sinna, hann skal deyja fyrir sekt sína.
19 Samt spyrjið þið: „Hvers vegna tekur sonurinn ekki á sig sekt föður síns?“ Þar sem sonurinn hefur iðkað rétt og réttlæti og hefur gætt þess að halda öll ákvæði laga minna og framfylgja þeim skal hann vissulega lífi halda. 20 Sá maður sem syndgar skal deyja. Hvorki skal sonur taka á sig sekt föður síns né faðir taka á sig sekt sonar síns. Réttlæti réttláts manns skal tilreiknað honum sjálfum og ranglæti guðlauss manns skal koma niður á honum sjálfum.