Hann er upp risinn

1 Þá er hvíldardagurinn var liðinn keyptu þær María Magdalena, María móðir Jakobs og Salóme ilmsmyrsl til að fara og smyrja hann. 2 Og mjög árla hinn fyrsta dag vikunnar, um sólarupprás, koma þær að gröfinni. 3 Þær sögðu sín á milli: „Hver mun velta fyrir okkur steininum frá grafarmunnanum?“ 4 En þegar þær líta upp sjá þær að steininum hafði verið velt frá en hann var mjög stór. 5 Þær stíga inn í gröfina og sjá ungan mann sitja hægra megin, klæddan hvítri skikkju, og þær skelfdust.
6 En hann sagði við þær: „Skelfist eigi. Þér leitið að Jesú frá Nasaret, hinum krossfesta. Hann er upp risinn, hann er ekki hér. Sjáið þarna staðinn þar sem þeir lögðu hann. 7 En farið og segið lærisveinum hans og Pétri: Hann fer á undan yður til Galíleu. Þar munuð þér sjá hann eins og hann sagði yður.“