2. kafli

8 En þú, mannssonur, hlýddu á það sem ég segi við þig. Vertu ekki þrjóskur eins og þetta þverúðuga fólk. Opnaðu munn þinn og et það sem ég fæ þér.“
9 Þegar ég leit upp sá ég hönd sem að mér var rétt og í henni var bók. 10 Hann rakti hana sundur fyrir mér og á hana voru rituð, bæði á framhlið hennar og bakhlið, harmakvein, andvörp og kveinstafir.

3. kafli

1 Hann sagði við mig: „Mannssonur, et það sem að þér er rétt. Et þessa bók og farðu síðan og ávarpaðu Ísraelsmenn.“ 2 Þá opnaði ég munninn og hann fékk mér bókina að eta 3 og sagði við mig: „Mannssonur, et bók þessa og láttu hana fylla magann.“ Þá át ég hana og hún var sæt sem hunang í munni mér.
4 Síðan sagði hann við mig: „Mannssonur, farðu nú til Ísraelsmanna og flyttu þeim orð mín 5 því að þú ert ekki sendur til fólks sem talar framandi eða óskiljanlegt tungumál, heldur til Ísraelsmanna, 6 ekki til margra þjóða sem tala framandi tungumál sem þú skilur ekki orð í. Ef ég hefði sent þig til þeirra hefðu þær hlustað á þig. 7 En Ísraelsmenn vilja ekki hlusta á þig af því að þeir vilja ekki hlusta á mig. Þar sem allir Ísraelsmenn hafa hart enni og forhert hjarta 8herði ég nú andlit þitt eins og andlit þeirra og enni þitt eins og enni þeirra. 9 Ég hef gert enni þitt hart sem demant, harðara en kvars. Þú skalt hvorki óttast þá né skelfast þó að þeir séu þverúðugt fólk.“

Spámaðurinn sendur til hinna útlægu

10 Síðan sagði hann við mig: „Mannssonur, hlýddu með athygli á öll þau orð sem ég tala til þín og festu þau í huga þér. 11 Haltu af stað, farðu til útlaganna, samlanda þinna, ávarpaðu þá og segðu: Svo segir Drottinn Guð, hvort sem þeir hlusta eða ekki.“
12 Þá hóf andinn mig upp. Ég heyrði drunur frá miklum jarðskjálfta að baki mér þegar dýrð Drottins hófst upp frá stað sínum,[ 13 þytinn frá vængjum veranna sem snerust, hvin hjólanna við hlið þeirra og drunur frá miklum jarðskjálfta. 14Andinn hóf mig upp og bar mig með sér. Ég hélt af stað bitur og reiður því að hönd Drottins hvíldi þungt á mér. 15 Ég kom til útlaganna í Tel Abíb, þeirra sem bjuggu við Kebarfljót. Ég sat á meðal þeirra í sjö daga, stjarfur af skelfingu.