Hefnd Absalons

23 Tveim árum síðar lét Absalon rýja fé sitt í Baal Hasór við Efraím og bauð þá öllum sonum konungs til veislu. 24 Hann gekk því fyrir konung og sagði: „Nú er verið að rýja fé mitt, þjóns þíns. Mundi konungur vilja koma ásamt hirðmönnum sínum og sitja veislu með þjóni sínum?“ 25 Konungur svaraði Absalon: „Nei, sonur minn. Við getum ekki komið allir. Við viljum ekki íþyngja þér.“ Þó að Absalon legði að honum vildi hann ekki koma, heldur bað hann að fara og kvaddi hann. 26 Þá sagði Absalon: „Má Amnon, bróðir minn, þá ekki fara með okkur?“ En konungur spurði: „Hvers vegna ætti hann að fara með þér?“ 27Þegar Absalon lagði enn fastar að honum leyfði hann loks að Amnon færi með honum ásamt hinum sonum konungs.
28 Nú gaf Absalon mönnum sínum þessi fyrirmæli: „Fylgist vel með þegar Amnon gerist hreifur af víni. Þegar ég segi ykkur að ráðast á hann skuluð þið drepa hann. Verið óhræddir því að það er ég sem hef skipað ykkur þetta. Verið hughraustir og sýnið karlmennsku.“
29 Mennirnir gerðu síðan við Amnon það sem Absalon hafði fyrirskipað og spruttu þá allir synir konungs á fætur, stigu á bak múldýrum sínum og flýðu. 30 Á meðan þeir voru á leiðinni barst Davíð þessi orðrómur: „Absalon hefur drepið alla syni konungs. Enginn þeirra komst undan.“ 31 Þá reis konungur á fætur, reif klæði sín og varpaði sér til jarðar. Allir þjónar hans stóðu umhverfis hann og rifu klæði sín.
32 En Jónadab, sonur Símea, bróður Davíðs, sagði: „Herra minn þarf ekki að óttast að þessir ungu konungssynir, allir synir konungs, hafi verið drepnir. Amnon einn er dauður. Frá því að Amnon nauðgaði Tamar hefur svipur Absalons vitað á illt. 33 Herra minn, konungurinn, má ekki taka þetta nærri sér og halda að allir synir konungsins séu dauðir því að Amnon einn er dauður.“
34 Á meðan þessu fór fram hafði Absalon komist undan. Ungi maðurinn, sem var á verði, kom allt í einu auga á mikinn mannfjölda sem kom eftir veginum til Hórónaím utan í fjallshlíðinni. 35 Þá sagði Jónadab við konunginn: „Þarna koma konungssynirnir. Þetta er eins og þjónn þinn hefur sagt.“ 36 Varla hafði hann sleppt orðinu þegar synir konungs komu og grétu hástöfum. Konungur og þjónar hans tóku þá einnig að gráta hástöfum. 37 En á meðan þessu fór fram hafði Absalon flúið til Talmaí Ammíhúðssonar, konungs í Gesúr. En Davíð syrgði son sinn langa hríð. 38 Þegar Absalon flýði fór hann til Gesúr og dvaldist þar í þrjú ár. 39 En viðhorf konungs til Absalons mildaðist þegar hann hafði sætt sig við dauða Amnons.