Biblíudagurinn er dagur sem sérstaklega er tileinkaður Biblíunni. Hann er alltaf haldinn hátíðlegur annan sunnudag í níuviknaföstu sem að þessu sinni er 31. janúar 2016. Þá verður útvarpað guðsþjónustu frá Hallgrímskirkju þar sem biskup Íslands og forseti Biblíufélagsins Agnes M.Sigurðardóttir mun prédika og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari.
Á þessum degi þökkum við fyrir að við eigum Biblíuna á okkar eigin tungumáli og um leið erum við hvött til að að lesa og kynna okkur boðskap Biblíunnar.

Biblíufélagið tekur þátt í alþjóðlegu starfi og að þessu sinni er ætlunin að safna fyrir barnabiblíum til Úkraínu. Stríðið austur í Úkraínu hefur hrakið rúmlega eina milljón manna á flótta. Margir hafa misst nána ástvini. Það sem hófst með friðsamlegum kröfugöngum á Maidan-torginu í Kænugarði, hefur endað sem blóðug borgarastyrjöld á milli aðskilnaðarsinna, sem eru hliðhollir Rússum, og úkraínskra stjórnarliða. Margir hafa þurft að yfirgefa hús sín og heimili og allir landsmenn eru áhyggjufullir og órólegir vegna þess sem er að gerast. Hið íslenska biblíufélag vill ekki aðeins stuðla að útbreiðslu Biblíunnar á Íslandi heldur út um allan heim.
Á heimasíðu biblíufélagsins undir dálknum Biblíudagurinn 2016 er hægt að nálgast myndasýningu og annað efni sem hægt er hægt að nýta í barna- og æskulýðsstarf, starf með eldri borgurum, helgistundir eða guðsþjónustur.
Kirkjur munu á þessum degi taka samskot til verkefnisins og einnig verða sendir út greiðsluseðlar til félagsfólks.
Bankanúmer söfnunarreikningsins er 0101-26-3555 og kennitala félagsins er620169-7739. Ef greitt er í heimabanka má senda rafræna kvittun á netfangfélagsins: hib@biblian.is.