Allslaust barn

Nýfætt blessað barnið sefur,
bjart á svip og hvílir rótt.
Ljós í myrkri líf þess gefur,
líkn og gleði helga nótt.
Bljúgir hirðar fjár það fregna
fyrir englasöng og boð
Guð sé orðinn allra vegna
allslaust barn í reifa voð

Vitringar í leiðarljósi
loga stjörnu himni á
barnið finna í Brauðhúsfjósi,
bera gjafir,  segja frá,
konungur úr kærleiksríki
kominn sé að græða sár,
fjötrar brotni og bölið víki,
blessun gefi og þerri tár

Fæðast börn í bjargarleysi,
birtu fjarri, hvergi skjól,
finnast víða vesöl hreysi,
vegalausir menn um jól,
eldar slokkna ei ófriðsbála,
auðsæld myrkvar skyn og vit,
helga mynd þó hægt að mála,
hafa í fögrum jólalit

Ljós af björtu barni sjáum,
blikar stjarna er vísar á,
Jesú nafni fylgt við fáum,
fegurð heimsins skynjað þá,
einnig sorgir, sár og vanda.
Sigurfórn þær getur bætt.
Berst þá friðarljós til landa,
lífið fagnar endurfætt

Gunnþór Þ. Ingason