Laugardaginn 31. október nk. verður haldið málþing í safnaðarheimili Grensáskirkju í Reykjavík kl. 13:30-16:00 undir yfirskriftinni Lúther og Biblían. Þetta er þriðja málþingið sem nefnd um fimm alda minningu siðbótarinnar stendur að. Að þessu sinni er málþingið haldið í samstarfi við Biblíufélagið í tilefni af 200 ára afmæli þess.

Á málþinginu verða flutt þrjú erindi:

Dr. Gunnar Kristjánsson: Reynslan og Ritningin. Um Biblíutúlkun Lúthers.

Sr. Dalla Þórðardóttir: Að lesa Biblíuna með Lúther.

Sr. Árni Svanur Daníelsson: Lesandinn athugi það. Um formála Lúthers að ritum Biblíunnar.

 

Dr. Gunnar J. Gunnarsson stýrir umræðum.

Boðið verður upp á kaffi og er málþingið öllum opið.