Í tilefni af 200 ára afmæli Biblíufélagsins á Íslandi mun Pósturinn gefa út afmælisfrímerki. Oscar Bjarnason hannaði fallegt frímerki en hann er grafískur hönnuður.  Í Frímerkjafréttum fyrir árið 2015 birtist eftirfarandi texti:
Hið íslenska biblíufélag
Biblíufélagið er elsta starfandi félag landsins, stofnað 10. júlí árið 1815 og verður því 200 ára á næsta ári. Markmið félagsins hefur alla tíð verið að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. Félagið tekur þátt í starfi Sameinuðu Biblíufélaganna, United Bible Societies, UBS og nýtur einnig velvilja Biblíufélaganna á Norðurlöndunum.
Hið íslenska Biblíufélag var stofnað á prestastefnu í Reykjavík 10. júlí 1815 og er því elsta starfandi félag landsins. Ebenezer Henderson átti frumkvæðið að stofnun þess og naut hann stuðnings áhrifamanna, og frá upphafi var félagið algjörlega á íslenskum höndum. Þessir menn hljóta því að teljast meðstofnendur þess, og má raunar skipa þeim í tvo flokka. Í þrengri hópnum eru þeir embættismenn kirkju og þjóðlífs, sem Henderson ræddi við fyrir stofnfundinn. En í hinum flokknum eru svo fulltrúar þjóðarinnar eða kirkjunnar 19 eða 22 talsins, er sátu stofnfundinn og léðu málefninu stuðning sinn með því að undirrita stofnskjal félagsins, 10. júlí 1815.  Stofnun Hins íslenska Biblíufélag er talinn einn merkasti atburðurinn í íslensku kirkjulífi á fyrsta aldarfjórðungi 19. aldar.