Í október síðastliðnum kynnti ,,Kristilega dagblaðið“ í Noregi stóra, alþjóðlega könnun um uppáhalds-ritningarversin. Könnunin var gerð á vefsíðunni Bible Gataway en þar var kannað hvaða ritningarvers fólk fletti oftast upp í Biblíu-leitarvél þeirra. Vinsælasta biblíuversið var ,,Litla Biblían“ ( Jóh. 3:16). ,,Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf“

Á heimasíðu norska biblíufélagsins er annað ritningarvers sem sker sig úr en það er kærleiksóðurinn úr fyrsta Korintubréfi 13 kafla. Vefstjóri norsku síðunnar Bjørn Håkon Hovde, segir að norskir lesendur Biblíunnar fletti mikið upp á þessum kafla í Biblíunni.

,, Þetta er fallegur, ljóðrænn og innihaldsríkur texti. Þetta er sá ritningartexti sem birtist oftast þegar leitað er á leitarvélinni að textum sem innihalda orðið kærleikur“ Hér að neðan má lesa textann úr I. Kor: 13.

Þótt ég talaði tungum manna og engla
en hefði ekki kærleika
væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla.
Og þótt ég hefði spádómsgáfu
og vissi alla leyndardóma og ætti alla þekking
og þótt ég hefði svo takmarkalausa trú að færa mætti fjöll úr stað
en hefði ekki kærleika,
væri ég ekki neitt.
Og þótt ég deildi út öllum eigum mínum
og þótt ég framseldi líkama minn til þess að verða brenndur
en hefði ekki kærleika,
væri ég engu bættari.
Kærleikurinn er langlyndur, hann er góðviljaður. Kærleikurinn öfundar ekki.
Kærleikurinn er ekki raupsamur, hreykir sér ekki upp.
Hann hegðar sér ekki ósæmilega, leitar ekki síns eigin,
hann reiðist ekki, er ekki langrækinn.
Hann gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.
Hann breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt.
Kærleikurinn fellur aldrei úr gildi.
En spádómsgáfur, þær munu líða undir lok,
og tungur, þær munu þagna, og þekking, hún mun líða undir lok.
Því að þekking vor er í molum og spádómur vor er í molum.
En þegar hið fullkomna kemur líður það undir lok sem er í molum.
Þegar ég var barn talaði ég eins og barn,
hugsaði eins og barn og ályktaði eins og barn.
En þegar ég var orðinn fulltíða lagði ég niður barnaskapinn.
Nú sjáum vér svo sem í skuggsjá, í ráðgátu,
en þá munum vér sjá augliti til auglitis.
Nú er þekking mín í molum
en þá mun ég gjörþekkja eins og ég er sjálfur gjörþekktur orðinn.
En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt,
en þeirra er kærleikurinn mestur.