1Frá Páli, þjóni Guðs, en postula Jesú Krists til að efla trú Guðs útvöldu og þekkingu á sannleikanum, sem leiðir til guðhræðslu2í von um eilíft líf. Því hefur Guð, sá er ekki lýgur, heitið frá eilífum tíðum,3en opinberað á settum tíma. Þetta orð hans var mér trúað fyrir að prédika eftir skipun Guðs, frelsara vors.4Til Títusar, skilgetins sonar míns í sameiginlegri trú. Náð og friður frá Guði föður og Kristi Jesú, frelsara vorum.5Ég lét þig eftir á Krít, til þess að þú færðir í lag það, sem ógjört var, og skipaðir öldunga í hverri borg, svo sem ég lagði fyrir þig.6Öldungur á að vera óaðfinnanlegur, einkvæntur, á að eiga trúuð börn, sem eigi eru sökuð um gjálífi eða óhlýðni.7Því að biskup á að vera óaðfinnanlegur, þar sem hann er ráðsmaður Guðs. Hann á ekki að vera sjálfbirgingur, ekki bráður, ekki drykkfelldur, ekki ofsafenginn, ekki sólginn í ljótan gróða.8Hann sé gestrisinn, góðgjarn, hóglátur, réttlátur, heilagur og hafi stjórn á sjálfum sér.9Hann á að vera maður fastheldinn við hið áreiðanlega orð, sem samkvæmt er kenningunni, til þess að hann sé fær um bæði að áminna með hinni heilnæmu kenningu og hrekja þá, sem móti mæla.10Því að margir eru þverbrotnir og fara með hégómamál og leiða í villu, allra helst eru það þeir sem halda fram umskurn,11og verður að þagga niður í þeim. Það eru mennirnir, sem kollvarpa heilum heimilum, er þeir kenna það, sem eigi á að kenna, fyrir svívirðilegs gróða sakir.12Einhver af þeim, eigin spámaður þeirra, hefur svo að orði komist: Krítarmenn eru síljúgandi, óargadýr og letimagar.13Þessi vitnisburður er sannur. Fyrir þá sök skalt þú vanda harðlega um við þá, til þess að þeir verði heilbrigðir í trúnni,14og gefi sig ekki að gyðingaævintýrum og boðum manna, sem fráhverfir eru sannleikanum.15Allir hlutir eru hreinum hreinir, en flekkuðum og vantrúuðum er ekkert hreint, heldur er bæði hugur þeirra flekkaður og samviska.16Þeir segjast þekkja Guð, en afneita honum með verkum sínum. Þeir eru viðbjóðslegir og óhlýðnir, óhæfir til hvers góðs verks.

1.1 Páll postuli 1Kor 1.1+ – þekking á sannleikanum 1Tím 2.4+ – guðrækni 1Tím 4.7-8+
1.3 Á settum tíma Ef 1.9-10; 1Tím 2.6+ – Guð opinberar orð sitt Róm 16.25-26; 1Kor 2.7-9;
Ef 3.5-9; Kól 1.26 – Páli falið að prédika 1Tím 1.11+ – Guð frelsari 1Tím 1.1+
1.4 Títus 2Kor 2.13+ – skilgetið barn í trú 1Tím 1.2
1.5 Öldungar Post 11.30+ ; sbr 1Tím 3.1+
1.6-9 Um öldunga 1Tím 3.2-7; 2Tím 2.24-26
1.9 Hin heilnæma kenning 1Tím 1.10+
1.10 Þeir umskornu sbr Post 15.1
1.11 Eyðileggja fjölskyldur 2Tím 3.6 – fyrir svívirðilegs gróða sakir Jóh 10.12; 1Pét 5.3
1.13 Vanda harðlega um við 2Tím 4.2
1.14 Bábiljur 1Tím 1.4+
1.15 Allt hreint Matt 15.11; Lúk 11.41; Róm 14.20
1.16 Afneita Guði með verkum sínum 1Jóh 1.6; 2.4